Jóga á Íslandi - Fyrirlestur í HÍ 17. maí

 

Jóga á Íslandi

 


Erindið er haldið í Háskóli Íslands stofu 106 í Odda 17. maí 2017 - kl. 13:20-15:00. Allir velkomnir.
Bjarni Randver Sigurvinsson doktorsnemi kynnir niðurstöður rannsókna sinna á stöðu jóga í íslensku samfélagi með sérstaka áherslu á kristna kirkju. Andmælandi verður sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson formaður Lífspekifélags Íslands.
    Jóga var kynnt til sögunnar meðal Íslendinga snemma á 20. öldinni af guðspekifélögum eins og Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi en það var ekki fyrr en á sjöunda áratugnum sem fyrstu jógahreyfingarnar hófu starfsemi í landinu og farið var að bjóða upp á jógaiðkun að ráði meðal landsmanna. Með nýaldarvakningunni á níunda áratugnum jókst áhugi á jóga til muna og er jógaiðkun í einni eða annarri mynd nú útbreidd um land allt og nær til íþróttafélaga, líkamsræktarstöðva, hjúkrunar- og heilsustofnana, skóla og þjóðkirkjunnar.
    Þrátt fyrir þetta hefur jóga ekki alltaf þótt sjálfsagður hlutur í íslensku þjóðfélagi og sætti bæði iðkunin og hugmyndafræðin að baki henni harðri gagnrýni úr ýmsum áttum út alla 20. öldina. Fyrsta jógabókin sem kom út í íslenskri þýðingu var hædd í fjölmiðlum, Guðspekifélagar vöruðu margir við hathajóga vel fram yfir miðja öldina og voru mun áhugasamari um hugleiðslu, dulspeki, búddhisma og advaita vedanta, vissar jógahreyfingar voru tengdar við glæpi og hryðjuverk, jóga sætti tortryggni úr heilbrigðisgeiranum, þjóðkirkjan varaði ítrekað við jóga og jafnvel jógahreyfingar vöruðu ýmsar hverjar við hverri annarri. Þótt jóga þyki víða sjálfsagður hlutur í dag eru enn ýmsir hópar í samfélaginu sem eru andsnúnir allri slíkri iðkun.
http://www.hi.is/vidburdir/joga_a_islandi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Við þurfum helst alltaf að gera greinarmun á nútíma-jóga eins og við sjáum hér fyrir neðan og er í raun okkar næsta skref inn í framtíðana:

Það er bara 100% jákvætt og gæti leitt til meiri vellíðunnar hjá fólki heldur en mörg önnur trúarstefnan: 

http://thjodarskutan.blog.is/blog/gudspekifelag_s/?offset=20

---------------------------------------------------------------------

og svo allskyns skítugum furðufuglum á indlandi sem að eru með allskyns furðu-guði og eru í allskyns kukli en við ættum ekki að blanda þeim saman við nútíma-jóga.

Jón Þórhallsson, 17.5.2017 kl. 10:50

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þó svo að fólk kæmi saman 1 kvöld í viku inn í hinum venjulegu staðarkirkjum til að skiptast á skoðunum að þá þyrfti það ekkert að raska hinu venjulega kristna helgihaldi sem að fólk er vant að ástunda.

Jón Þórhallsson, 17.5.2017 kl. 15:13

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þó svo að fólk kæmi saman 1 kvöld í viku inn í hinum venjulegu kristnu staðarkirkjum til að ástunda jóga og  skiptast á skoðunum að þá þyrfti það ekkert að raska hinu venjulega kristna helgihaldi sem að fólk er vant að ástunda.

Jón Þórhallsson, 17.5.2017 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 93984

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband