Stefnumót við alheiminn - Fyrirlestur, Haraldur Erlendsson

 

Haraldur Erlendsson fjallar um bókina Stefnumót við alheiminn eftir Sigvalda Hjálmarsson. Haraldur talar um Sigvalda og jógahefðina sem hann sótti til Indlands og fékk hjá einum af fimm páfum hindúismans í Kanchipuram. 


Innhverf íhugun - Hugleiðslunámskeið

 

Næsta námskeið hefst ...

í miðstöð Íslenska íhugunarfélagsins í
Þórunnartúni 2 (áður Skúlatún) í Reykjavík

föstudaginn 21. september 2018 kl.19:30

Upplýsingar í síma: 557 8008

 

http://www.ihugun.is/


Frelsi mannsins - Krishnamurti. Kynningarhóf fimmtudaginn 13. sept. kl 20 í tilefni af útgáfu bókarinnar

 

 

 

Kynningarhóf í tilefni af útgáfu bókarinnar Frelsi mannsins.

Fimmtudaginn 13. sept. kl 20

 

Boðið verður upp á stutta kynningu og upplestur úr bókinni ásamt laufléttum veitingum. Bókin verður til sölu á staðnum á tilboðsverði með 20% afslætti. Allir hjartanlega velkomnir. 

Í þessu klassíska verki skorar heimsspekingurinn J. Krishnamurti (1895-1986) á lesendur að leggja til hliðar allar fyrirfram mótaðar hugmyndir – allt sem við teljum okkur vita um málefni á borð við ást, hamingju, ofbeldi, fegurð og dauða – og lærum að horfast í augu við okkur sjálf eins og við erum í raun og veru.

Krishnamurti er talinn einn merkasti hugsuður 20. aldar.

 

Kristinn Arnason þýddi


Að leita skjóls - Fyrirlestur

 

Næsta laugardag, 8. september frá kl. 09:15 - 10:15, mun Ástvaldur Zenki flytja Dharma ræðu í húsakynnum Nátthaga að Grensásvegi 8, 4.hæð. Yfirskrift ræðunnar er "Að leita skjóls".
 
En Ástvaldur segir meðal annars:

Með því að leita skjóls í Búdda, Dharma og Sangha stígum við til hliðar og gefum okkur á vald fjársjóðanna þriggja, sem eru endalaus uppspretta sköpunar, visku og kærleika.
 
Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis. ​Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Sept. 2018
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 93996

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband