Lífspekifélagið laugardaginn 18. mars, kl. 15 - Trú og Töfrar Kwermin fólksins í Papúa Nýju-Gíneu

 

Trú og Töfrar Kwermin fólksins í Papúa Nýju-Gíneu

Sveinn Eggertsson segir frá lífsbaráttu Kvermin-fólksins í umhverfi regnskógar og lífsskilningi þeirra eins og hann kemur fram í upprunasögum, alheimsmynd og þroskavígslum. Sveinn er dósent við mannfræðideild Háskóla Íslands, en hann dvaldi í tvö ár á Nýju-Gíneu við mannfræðirannsóknir sem urðu honum efni í doktorsritgerð.
„Sögur af týndu fólki – eða fólki í felum – voru oft sagðar af Kwermin-fólkinu sem ég dvaldi hjá á Nýju-Gíneu. Stundum var fólkinu lýst sem skelfilegum mannætum, stundum sem hálfgildings dýrum með hala, stundum sem hræddu fólki sem þyrði ekki að hafa samskipti við umheiminn. Sögurnar áttu stundum rætur í upplifun fólksins sjálfs, sem kynntist evrópskum áhrifum seint.“
 
Aðgangur er ókeypis og að erindi loknu er boðið upp á kaffi og kruðerí á efri hæð hússins

 


Lífspekifélagið föstudaginn 17. mars, kl. 20 - Tengsl og tjáskipti

 

Tengsl og tjáskipti
 
Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson hefur um árabil haldið regluleg námskeið og fyrirlestra fyrir ríkisstofnanir og félagasamtök um átakastjórnun, sáttamiðlun, samtalstækni, sjálfsstyrkingu, leiðir til að bæta andrúmsloft á vinnustöðum og takast á við krefjandi einstaklinga. Í þessum fyrirlestri mun hann fjalla um þau gildi sem skipta okkur mestu máli en það eru tengsl og tjáskipti.
 
Aðgangur er ókeypis og að erindi loknu er boðið upp á kaffi og kruðerí á efri hæð hússins.

Bloggfærslur 17. mars 2023

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 93775

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband