Það liggja margar leiðir upp fjallið

,,Það liggja margar leiðir upp fjallið og hver og einn verður að velja þá iðkun sem hann finnur í hjarta sér að er sönn. Það er engin nauðsyn fyrir ykkur að leggja mat á þær leiðir sem aðrir velja sér. Munið að sérhver iðkunarleið er aðeins aðferð til að þroska með ykkur gát, góðvilja og samkennd. Það er allt og sumt.

   Eins og Búdda sagði: ,,Maður þarf ekki að bera flekann á höfði sér eftir að hafa farið á honum yfir fljótið.” Við þurfum að læra að virða og nota ákveðna leið svo lengi sem hún gagnast okkur – sem í flestum tilfellum er mjög langur tími – en líta aðeins á hana sem slíka, þ.e. tæki eða fleka til að hjálpa okkur að komast yfir vötn efasemda, ruglings, löngunar og ótta. Við getum verið þakklát fyrir flekann sem við styðjumst við en samt gert okkur ljóst að þótt hann gagnist okkur þá nota hann ekki allir.”

 

Jack Kornfield – Um hjartað liggur leið


Að treysta andanum

st_aum

 

Trúin tengir okkur beint við visku alheimsins

og minnir okkur á að við vitum meira

en það sem við höfum heyrt, lesið eða lært –

að við þurfum einungis að leita, hlusta

og treysta á kærleik og visku

Alheimsandans

sem vinnur í gegnum okkur öll.

 

Dan Millman – Lögmál andans


Í tilefni af 12. maí

 

"Politicians are the same all over. They promise to build a bridge even where there is no river."

Nikita Khrushchev

 

 "I was really too honest a man to be a politician and live."
 

Socrates  

 

 

 

 


Buddha

 Buddha_Bali_26cm

All that we are is the result of what we have thought. The mind is everything. What we think we become. 

Buddha


Lögmál andans

Til er leyndardómur sem margir kalla Guð.

Hann birtist okkur sem kærleikur alheimsins,

í gegnum ákveðin lögmál

og stórfenglegt þróunarferli.

Ferlið er að verki

í hverju og einu okkar

og ferlið er fullkomið.

Þegar við uppgötvum þau grundvallarsannindi,

á ferðlagi okkar um lífið,

komumst við að því að stígurinn birtist

um leið og við drepum niður fæti.

 

Dan Millman – Lögmál andans

 

Ashtavakra Gita

 om screensaver

16

Þitt sanna eðli er tær Vitund.

 

Þú flæðir um alla hluti og allir hlutir flæða í þér.

 

Gættu þín því á þrengslavegum hugans!

 

17

Þú ert alltaf eins, takmarkalaus Vitund, óbreytanleg og frjáls, rósemdin sjálf og viskan. Ekkert fær haggað þér!

 

Því skyldirðu þrá eitthvað annað er þína eigin Vitund?

 

18

Það sem tekur á sig mynd varir ekki. Aðeins hið formlausa blífur.

 

Hver sem skilur í raun sannindi þessarar kenningar mun ekki fæðast að nýju.

  

Ashtavakra Gita (Tvísöngur Hins Eina, þýð: Vésteinn Lúðvíksson)


Andinn (sálin, búddaeðlið, stóri hugur, vitundin, sjálfið ...) eilífi

krishna_arjuna_2 

Andinn fæðist ei og ei hann deyr, hann er og verður nú og endalaust. Hann á sér ekkert upphaf, hættir ei að vera til,

og ei hann deyr þótt holdið vegið sé.

Eins og sá er leggur frá sér föt, sem farin eru að slitna og fær sér ný, þannig leggur andinn af sér líkamslín, sem hann ei lengur getur notast við,

og fær sér nýjan efnishjúp.

Hann ósnortinn er af öllum öflum, sem eyða og brenna og þurrka. Hann er hið eilífa í öllu, og aldrei hann breytist um aldir.

Því þótt að þér virðist hann deyja, þá er þetta ei sem þér sýnist, þú þarft eigi harm með þér að ala. Dauðinn er vís þeim sem fæðast, fæðing er vís þeim sem deyja. En andinn að eilífu lifir … 

 

 

Bhagavad Gita

 

 

 

 

 


Ótti

 

Óttinn (birt fyrir kæran vin)

 

Ef ykkur væri ógnað með eldi og líkamlegu ofbeldi, gætuð þið vitaskuld upplifað eitthvað sem við köllum hræðslu. En það er ekki það sálræna óttaástand sem við erum að tala um hér, heldur eðlislægt og ósjálfrátt viðbragð við hættu. Sálrænn ótti er aftur á móti í engum tengslum við raunverulega, áþreifanlega hættu. Hann getur birst sem óró, áhyggjur, kvíði, óöryggi, spenna, uggur o.s.frv. Hann er alltaf ótti við eitthvað sem gæti gerst, ekki eitthvað sem er að gerast núna. Þið eruð hér og nú en hugurinn í framtíðinni. Og í bilinu þarna á milli kviknar kvíðinn. Séuð þið samgróin huganum og þar með úr tengslum við einfaldleikann og máttinn í Núinu, þá verður kvíðabilið ykkar förunautur.

Þið getið alltaf tekist á við andartakið, þetta andartak, en ekki það sem er aðeins hugarburður.

Eins og ég hef áður bent á, þá mun égið stjórna lífi ykkar svo lengi sem þið trúið því að þið séuð hugurinn. Vegna þess hvað égið er mikill tilbúningur, og þrátt fyrir margbrotna varnarhættina, er það óöruggt og afar viðkvæmt og upplifir stöðugt að því sé á einhvern hátt ógnað. Og þetta á líka við þegar égið er öryggið uppmálað á ytra borði. Gleymið því ekki að sérhver tilfinnig er viðbragð líkamans við huganum. Og hvaða skilaboð er égið, hið falska sjálf, stöðugt að senda líkamanum? Hætta á ferðum! Þetta er ekki öruggt! Og hvaða tilfinningu kveikja þessi skilaboð? Vitaskuld ótta.

 

Eckhart Tolle Mátturinn í Núinu


Sri Ramakrishna

ramakrishna1 

"Different people call on [God] by different names: some as Allah, some as God, and others as Krishna, Siva, and Brahman. It is like the water in a lake. Some drink it at one place and call it 'jal', others at another place and call it 'pani', and still others at a third place and call it 'water'. The Hindus call it 'jal', the Christians 'water', and the Moslems 'pani'. But it is one and the same thing."

Sri Ramakrishna


Kærleikur II

Leyfðu kærleikanum að stjórna. Það er ekkert að óttast nema óttann. Óttinn er óvinur mannsins, sá síðasti sem þarf að sigrast á. Óttastu ekki. Láttu allt í hendur viskunnar og kærleikans sem birtist í hinu guðdómlega lögmáli. Gerðu þitt besta. Vertu sannur og einlægur og kærleiksríkur í mannlegum samskiptum. Leyfðu kærleikanum að stjórna hjarta þínu og lífi.

 

White Eagle - Hinn Kyrri Hugur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Maí 2007
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1755205790198
  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.10.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 96853

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband