Færsluflokkur: Bloggar

Þegar okkur tekst að sjá heiminn án afskipta hugans

 

Þegar okkur tekst að sjá heiminn án afskipta hugans, sjáum við lífið sem fylgir forminu. Þegar okkur tekst að hlusta á heiminn án íhlutunar hugans, heyrum við líf og þegar við finnum milliliðalaust fyrir, finnum við líf í tilverunni. Þegar hugurinn er hreinn af hugsunum streymir til okkar líf en þegar hugarskýin hrannast upp sjáum við aðeins formið.

Hugarskýin eru þetta vanabundna hugarreik sem e.t.v. 90% snýst um sjálf okkur. Gagnslitlar hugsanir sem ekki leiða til neins nema þess að gera okkur erfiðara með að upplifa án hugans og þeirra fjötra sem hann leggur á vitundina.

  Birgir Bjarnason – Vitund, hugur og við  

 


Leitið að leið mennskunnar bæði innra með ykkur og utan við ykkur

 

Leitið að leið mennskunnar bæði innra með ykkur og utan við ykkur. Hún er innra því innan eðlis ykkar eru allir menn og allir hlutir. Hún er utan við ykkur því lífið sem er ykkar er einnig heimsins. Hún er innra með öllum hlutum en getur ekki fundist í einhverju einu aðeins, því hver hlutur er hluti alls annars. Þú munt leita hennar í mörgum hlutum og á marga vegu og í öllum hlutum og háttum sameinuðum; en ekki fyrr en þú og allt verður að einu, fyrr munt þú ekki finna Veginn til Mennsku.

 

The sayings of tha Ancient One

Tekið úr Gangler frá árinu 1992, hausthefti 

 


Dagskrá Guðspekifélagsins um helgina

 

Föstudaginn 22. febrúar kl. 20.30
Halldór Haraldsson:
Frelsi og kennivald.


 

Laugardaginn 23. febrúar kl. 15.30
Gunnlaugur Guðmundsson:
Ný sýn í stjörnuspeki


Swami Ashutosh Muni kemur til landsins

 

Ashutosh Muni 

 

Hinn hugljómaði jógameistari Swami Ashutosh Muni og sanyasi Prajna Ma bjóða okkur til kærleiksríkrar samveru helgina 14.-16.mars í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ.



Swami Ashutosh Muni hefur helgað líf sitt andlegri iðkun og hefur djúpstæða reynslu af leið hugljómunar.Hann hefur m.a. varið 27 ára ævi sinnar í einangrun og tveimur og hálfu af þeim í algjörri þögn.

  

Nánari upplýsingar: yoga@simnet.is


Almættið, Guð, Jehova, Krishna, Shiva, Brahman, Buddha, Vitund, Vishnu, Jesús, Allah o.s.frv.

 

Úr Bhagavad Gita

Ég segi mennina boðna og velkomna hvern veg sem þeir nálgast mig, af því að vegirnir sem þeir velja, er þeir koma hvaðanæva, eru mínir vegir.

4. kviða 11

Vita skaltu að allir hlutir eru í mér.9. kviða 6  Ég er öllum verum einn og samur.

9. kviða 17

… ég er í öllum skepnum, í öllum guðum og í öllum fórnum. 

7. kviða 29

Ég er í sérhverju hjarta.

7. kviða 30   

 

Kristni  

 

Ég og faðirinn erum eitt.

Jóh. 10:30

Ég er í föðurnum og faðirinn í mér.Jóh. 14:11    

 

Upanishad

Hann er guð, hin æðsta sál, að eilífu grundvallaður í hjarta alls sem er fætt.   Form hans er ekki innan marka sjónhrings, enginn maður merkir hann með augunum.

Shetashvatar Upanishad

 

Tekið úr hausthefti Ganglera frá árinu 1992

 

Hafið er allstaðar jafnblautt þó það beri mismunandi nöfn


Þriðja augað?

 

þriðja augað

   

“The light of the body is the eye: if therefore thine eye be single [one-pointed], thy whole body shall be full of light.” 

Matthew 6:22 

   

,,Augað er lampi líkamans. Sé auga þitt heilt, mun allur líkami þinn bjartur.”

Matteus 6:22

 


Yoga sutra

Bók I

---------

36. sútra

Með hugleiðslu er hægt að ná þekkingu á andanum og öðlast þannig frið.

 

37. sútra

Ró kemst á hugann og hann fær lausn frá blekkingum, þegar hið lægra eðli er hreinsað og stjórnin tekin af því.

 

---------

 

47. sútra

Þegar hinni háu hugleiðslu er náð, finnur yoginn andlega þekkingu í hinni algeru kyrrð hugans.

 

48. sútra

Hugur hans opinberar honum þá aðeins sannleikann einan.

 

---------

 

Bók II

 

1. sútra

 Líkamsögun, sjálfskönnun og að vinna guði verk sín, er kallað kriya yoga (yoga starfsins).

 

Yoga sútrur Patanjalis eru taldar hafa verið færðar í letur á 2. öld fyrir Krist en talið að þær hafi verið kenndar um aldaraðir áður en Patanjali ritaði þær, þannig að hann er ekki höfundur þeirra heldur var hann fyrstur til að færa þær í letur eins og fyrr sagði.

 

Patanjali. 1962. Yoga sútrur. Gunnar Dal þýddi.


Þú ert það sem þú hugsar og starfar

 

Þú ert það sem þú hugsar og starfar, þú umskapar sjálfan þig dag frá degi með því sem þú hugsar og starfar.   Úrþví þú ert þarna að verki sjálfur geturðu ef þú vilt tekið þér fyrir hendur að ráða hvernig þessi umsköpun verður.

   Það gerir þú með yogaiðkun, en ekki síður í daglegu lífi – með því að fylgjast með sjálfum þér andartak framaf andartaki, reyna að vera óháður, særa engan og starfa án hugsunar um laun.

Sigvaldi Hjálmarsson – Haf í dropa. Þættir um yoga og austræna hugsun.     

 

 Þessi frábæra bók var gefin út árið 1976 og þið getið þið fengið hana niður í Guðspekifélagi (síðast þegar ég var þar var hún til, það er að vísu svolítið langt síðan ég kom þangað síðast sökum anna við barnauppeldiJ, en vonandi er hún til ennþá).   

 


Hinn vitri safnar ekki auði

 

Hinn vitri safnar ekki auði.

Því meira sem hann ver öðrum til gagns,

því meira á hann sjálfur.

Því meira sem hann gefur öðrum,

því ríkari er hann.

 

Lao-tse

 


Yoga sútra Patanjalis

 

1. sútra

Þessi fræði fjalla um yoga.

 

2. sútra

Yoga er að hindra hugann (chitta) í að taka á sig síbreytileg vrittis, (geðbrigði og áhrif skynfæranna).

 

3. sútra

Þegar þessu er náð, þekkir yoginn sjálfan sig eins og hann er í raun og veru.

 

Patanjali. 1962. Yoga sútra Patanjalis.  Gunnar Dal þýddi. Prentsmiðja Jóns Helgasonar, Reykjavík.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1755205790198
  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband