Ég-ið

 

Ég-ið er einhver skringilegasta uppáfinning ímyndunareðlisins. Það er hugmynd, ekki upplifun, ekki einu sinni hugmynd um veruleika, heldur hugarburður. Ef þú reynir að finna ég-ið þá grípur þú í tómt.

Misskilningurinn liggur í því að þú ruglar saman vitundunni um að vera og þessari hugmynd sem kölluð er ég, og svo heldurðu kannski að þú hættir að vera til ef þú uppgötvar að til er ekkert aðgreint ég.

Þetta tvennt er ósambærilegt. Vitundin um að vera er ópersónuleg og án takmarkana; ég-ið er persónulegt og gerir undantekningarlaust ráð fyrir aðgreiningu, sbr. ég og þú, ég og hinir.

 

 

Sigvaldi Hjálmarsson - Eins konar þögn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Skemmtileg pæling hjá þér.

Óskar Arnórsson, 5.7.2010 kl. 12:21

2 Smámynd:                                           OM

Já, þetta er skemmmtileg pæling en því miður ekki frá mér kominn heldur frá Sigvalda Hjálmarssyni.  

OM , 5.7.2010 kl. 15:07

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Alveg sama hvaðan hún er komin. Hún er góð engu að síður. Það eru ekki nógu skýr "landakort" til af meðvitund mannsins. Eða útskýringar. þessi er góð því hún notar orð og hugtök sem eru "venjuleg", hvað svo sem það er...venjulegt mál kanski.

Óskar Arnórsson, 5.7.2010 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 96405

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband