Fyrirhafnarlaus og ótakmörkuð varurð er raunverulegt eðli okkar allra - Notaði Krishnamurti stiga?

 

Maður frá Sri Lanka spurði [Ramana]: J. Krishnmurti kennir leið hinnar fyrirhafnarlausu varurðar, þar sem hún er ekki látin taka eitt fram yfir annað í upplifuninni - gagnstætt skipulögðum hugræktaræfingum. - Vill Ramama vera svo góður að gera grein fyrir heppilegustu aðferðinni við hugleiðingu?

Ramana svaraði: Fyrirhafnarlaus og ótakmörkuð varurð er raunverulegt eðli okkar allra. Ef einhver getur haldið sig við það er það auðvitað langbest, en það kostar flesta einhverja fyrirhöfn að gera þetta viðvarandi. Sú fyrirhöfn er ævinlega skipulagðar hugræktaræfingar. Hinar rótgrónu tilhneigingar gera hugann úthverfann og upptekinn af aðgreindum fyrirbærum. Þessu verður að breyta og það kostar fyrirhöfn og æfingu, a.m.k. fyrir flesta. Ef svo væri ekki þá væri sá hinn sami sjálfkrafa þessi fyrirhafnarlausa varurð án þess að gera neitt. En ef þú getur þetta ekki, þá verðurðu að finna einhverja aðferð til að kyrra hugann sem þér fellur og halda þér við hana.

 

G.Á. sneri út The teachings og Ramana Maharshi - Brot út lítilli grein sem birtist í hausthefti Ganglera frá árinu 1984.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband