Góður göngumaður skilur ekki eftir sig spor

 

27.

góður göngumaður skilur ekki eftir sig spor. góður ræðumaður stamar ei. góður stærðfræðingur þarfnast ekki reikniaðferða. góður vörður þarfnast ekki lása. það sem hann geymir verður ekki opnað. sá er bindur best þarfnast ekki reipa það sem hann hnýtir verður ekki leyst. hinn vaknaði hjálpar hafnar engum. hann er bjargvættur snýr ekki frá neinum. viska hans felur í sér allt. hinn vaknaði leiðbeinir hinum sofandi. hinn sofandi er hráefni hins vaknaða. sá er ekki virðir fræðara sinn né gætir hráefnisins er óravegu frá hinum æðri vegi þótt hann sé nefndur ,,fræðari“.  

 

 

Hinn æðri vegur – A. Kalid Rah. Birgir Bjarnason þýddi.

 

 

Hin æðri vegur skráset af A. Kalid Roh í þýðingu Birgis Bjarnasonar.Höfundur eða öllu fremur skrásetjari þessarar bókar, súfinn A. Kalid Rah, dreymdi aldraðan mann sem sýndi honum gamla bók.Öldungurinn bað hann að vekja athygli nútímamanna á innihaldi bókarinnar.Hann sagði m.a.: Bókin er uppspretta orða allra mannkynsfræðara, spámanna, helgra manna og skálda. Menntamenn geta ekki skilið hana. Aðeins hinir upplýstu geta lesið hana. Hún er grunnur margra trúarbragða. Hún segir frá alheimslegum lögmálum, hinni óáþreifanlegu alheimsorku sem færir alla hluti í samræmi og gefur þeim tilveru.Hún er ekki trúarlegs eðlis, stjórnmálaleg, félagsleg né sálfræðileg en er uppspretta allra þessara forma. Rah skrifaði efni bókarinnar niður á níu dögum. Eftir að hann hafði lokið verkinu komst hann að því að bókinni svipaði mjög til Tao te King (Bókarinnar um veginn) eftir Lao-tse en þá bók hafði hann aldrei lesið.Lao-tse (gamli vitringurinn) var keisaralegur umsjónarmaður við bókasafn í Kína. Hann er fæddur að því menn best vita árið 604 f.Kr. en alls óvíst er um dánarár hans.Bókina um veginn skráði hann að beiðni landamæravarðar er hann yfirgaf land sitt háaldraður vegna óeirða í ríkinu og var þá á leið upp í fjöllin við norðvestur landamærin.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 14
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 96404

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband