Því miður kemur Sjálfsævisaga yoga ekki út fyrir jól

 

„Froskurinn er líka heima hjá sér í vatninu“, sagði Abu Said með góðlátlegri fyrirlitningu. „Hrafninn og gammurinn eiga létt með að fljúga í loftinu, og djöfullinn getur verið samtímis í austri og vestri. Sannur maður er sá, er dvelur með ráðvendni meðal samborgara sínna, sá, sem kaupir og selur, en gleymir þó ekki Guði eitt augnablik“.Öðru sinni lét þessi mikli persneski lærifaðir trúarskoðanir sínar í ljós þannig að  hann taldi nauðsynlegt: „Að  leggja til hliðar það, sem þú hefur í höfðinu (þ. e.: eigingjarnar langanir og metorðagirnd), gefa af ljúfum vilja það sem þú hefur handa á milli og láta aldrei bugast fyrir andstreymi“.

En hvorki þessi réttsýni vitringur, sem ég hitti í Kalighatmusterinu, né yoginn sem þjálfaður var í Tíbet, fullnægði þeirri þrá sem mér bjó í brjósti eftir meistara. Hjarta mitt þurfti engr­ar leiðsagnar við til að kannast við hann, heldur svarað í kalli hans viðstöðulaust með fögnuði og það því fremur sem sú þögn er umlukti huga minn var sjaldnar rofin. Þegar ég hitti hann að lokum kenndi hann mér með dýrlegu fordæmi sínu aðal hins sanna manns.

  

Sjálfsævisaga yoga – Brot úr kaflanum „Vitringurinn ilmandi” sýnir furðuverk

Því miður mun Sjálfsævisaga yoga ekki koma út fyrir jól. Það var mun meiri vinna í kringum bókina en við héldum þannig að útgáfan treysti sér ekki til að ná þessu fyrir jól. Stefnt er á að koma henni út í janúar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 96401

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband