Trúandinn alsæli og tilbeiðsla hans á hinni Heilögu móður

 

Yfir mig kom óumræðileg þögn, sem umbreytti öllu. Alveg eins og talmyndir nútímans verða að þögulum myndum, þegar hljóðneminn er ekki í lagi, þannig kyrrði þessi heilaga hönd á einhvern undursamlegan hátt öll umsvif veraldar. Öll hin mikla umferðaös af gangandi fólki, bílum, áætlunarvögnum, uxakerr- urn og járnhjóluðum hestvögnum streymdi nú áfram, að því er mér virtist á hljóðlausan hátt. Það var eins og ég yrði skyndi- lega gæddur altsjáandi augum, því að ég sá það sem gerðist að baki mér og til hliðar engu síður en það, er fram undan var. Gervalt athafnalífið í þessu borgarhverfi Kalkútta, sem ég var staddur í, bar fyrir mig í einni sýn og virtist líða hljóðlaust fyrir hugskotssjónir mínar. Mildur ljómi hvildi yfir þessari sýn eins og af eimyrju, sem hálfhulin er öskulagi.

 

   Líkami minn fannst mér vera eins og einn af hinum mörgu skuggum, enda þótt hann væri hreyfingarlaus, meðan aðrir færð- ust hljóðlega til og frá. Nokkrir drengir, sem voru vinir mínir, komu í áttina til mín og fóru fram hjá. Enda þótt þeir horfðu beint á mig, sáu þeir mig ekki.

 

Þessi óviðjafnanlegi þagnarleikur kom mér í óumræðilegt sælu- ástand. Það var eins og ég teygaði unað af einhverri fagnaðar- uppsprettu.

 

   Allt í einu klappaði meistari Mahasaya aftur mjúklega á brjóst mér. Í eyrum mér dundi ærandi hávaði veraldarinnar. Ég riðaði, eins og hefði ég verið vakinn harkalega af ljúfum draumi, þegar höfgi þessarar æðri vitundar rann af mér.

    „Vinur minn, ég sé, að þessi síðari myndasýning hefur fallið þér betur í geð“, mælti vitringurinn brosandi. Ég var að því kom- inn að fleygja mér að fótum hans í þakklætisskyni, er hann mælti: „Þú lætur það vera, að auðsýna mér nokkra virðingu á þennan hátt. Vita skaltu, að Guð býr einnig í þinni tjaldbúð. Ég vil ekki, að hin Heilaga móðir snerti fætur mína, enda þótt það sé með þínum höndum“.

 

Brot úr kaflanum Trúandinn alsæli og tilbeiðsla hans á hinni Heilögu móður sem er að finna í bókinni Sjálfsævisaga yoga sem vonandi fer að koma út á íslensku aftur hvað úr hverju.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband