Hugarró

Þegar talað er um shikantaza eða iðkun okkar á zazen, er einfaldlega átt við það að vera maður sjálfur. Þegar þú væntir einskis geturðu verið þú sjálf. Leið okkar er þessi: að lifa til fulls í hverju andartaki. Þessi iðkun heldur áfram að eilífu.

Við notum orðin „í hverju andartaki“, en í raun og veru er þetta „andartak“ of langt; í þessu „andartaki“ er hugurinn nú þegar bundinn af því að fylgja andardrættinum. Þess vegna er sagt: „Í einum einasta fingrasmelli eru ótal örskotsstundir.“ Með þessu undirstrikum við tilfinninguna að vera til í hverju andartaki. Þá verður hugur þinn mjög hljóðlátur.

Þú skalt því gefa þér tíma á hverjum degi til þess að sitja í shikantaza, án þess að hreyfa þig og án þess að búast við einhverju, rétt eins og það væri þitt síðasta andartak. Andartak eftir andartak finnurðu fyrir þinni hinstu stund. Í hverri innöndun og í hverri útöndun eru óendanlegar örskotsstundir. Ætlun þín er að lifa í hverri einustu þeirra.

Fyrst skaltu æfa þig að anda mjúklega frá þér, síðan að þér. Hugarróin er handan við útöndunina, þannig að ef þú andar mjúklega frá þér, án þess að reyna það, þá ertu að stíga inn í algjöra og fullkomna hugarró. Þú ert ekki lengur til. Þegar þú andar frá þér með þessum hætti mun innöndunin taka eðlilega við. Nýtt blóð sem færir með sér allt að utan mun gegnumsýra líkama þinn. Þú endurnýjast algjörlega. Síðan byrjarðu að anda frá þér, svo þú getir sent þessa fersku tilfinningu út í tómið. Andartak eftir andartak, án þess að reyna að gera nokkurn skapaðan hlut, heldurðu áfram í shikantaza.

Það kann að reynast þér erfitt að iðka shikantaza fullkomlega vegna sársauka í fótleggjum þegar þú situr með krosslagða fætur. En þú getur það, jafnvel þótt þú finnir fyrir sársauka. Þú getur það, jafnvel þótt iðkun þín er ekki nægilega góð. Smátt og smátt hverfur andardrátturinn. Smátt og smátt hverfur þú og dofnar inn í tómið. Þegar þú andar áreynslulaust að þér kemurðu eðlilega aftur til sjálfsins sem hefur einhvers konar lit og lögun. Þegar þú andar frá þér dofnarðu smátt og smátt inn í tómið – eins og auð, hvít pappírsörk. Svona er shikantaza. Útöndunin er aðalatriðið. Í stað þess að reyna að finna fyrir sjálfri þér þegar þú andar inn skaltu dofna inn í tómið þegar þú andar frá.

Þegar þú iðkar shikantaza í þínu síðasta andartaki þarftu ekkert að óttast. Þitt sanna takmark er tómið. Þegar þú hefur andað fullkomlega frá þér með þessari tilfinningu verður þú eitt með öllu sem er. Ef þú ert síðan ennþá á lífi muntu anda ósjálfrátt aftur að þér. „Ó, ég er ennþá lifandi! Til allrar hamingju eða til allrar óhamingju!“ Síðan andarðu frá þér og dofnar inn í tómið. Ef til vill kannast þú ekki við þessa tilfinningu. En einhver ykkar þekkja hana. Þetta hlýtur einhvern veginn að hafa hent ykkur.

 

Hugarró e.Shunryu Suzuki, í íslenskri þýðingu Mikhaels Óskarssonar.

 

Lesa í heild hér: http://zen.is/?p=661

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 96344

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband