Áróðursmeistari kærleikans

 

Undanfarið hefur töluvert verið rætt og ritað um það hvort trúfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar geri menn undanþegna landslögum um hatursáróður ef þeir geta fært rök fyrir því að mannhatrið sé trúarleg afstaða. Minna hefur verið rætt um það hvaða sálarmein valdi því að kristni sumra skuli brjótast út í hatursáróðri en ekki kærleiksáróðri. Jesús frá Nasaret var jú einhver mesti áróðursmeistari kærleikans sem uppi hefur verið: „Elska skaltu náungann eins og sjálfan þig."

Það er rétt að í Gamla testamentinu er kynlíf tveggja karlmanna sagt viðurstyggð (3M 18.22; 20.13). Á báðum þessum stöðum er líka tekið fram, nánast í næstu setningu á undan eða eftir, að fólk skuli ekki sofa hjá á meðan konan er á túr (18.19; 20.18). Af einhverjum ástæðum virðast þeir, sem mest er í nöp við hommaskap, alveg láta hjá líða að berjast með sama offorsi gegn því að fólk sé að gera dodo þegar Rósa frænka er í heimsókn – þótt Guð þeirra hafi alveg jafnmikla andstyggð á því. Þeir, sem byggja vilja hjónabandsskilning sinn á Gamla testamentinu, verða auk þess að samþykkja fjölkvæni (1Kron 3.1-9 o.fl.), kynlífsþrælkun og nauðungarstaðgöngumæðrun (1M 16.1-4) og að nauðgari geti komist hjá refsingu með því að kvænast fórnarlambi sínu og greiða föður þess skaðabætur (5M 22.28-29). Þeir, sem beita Gamla testamentinu fyrir sig í þessari umræðu, eru greinilega að velja það sem hentar fordómum þeirra úr safni fyrirmæla sem þeim dettur ekki í hug að taka önnur ákvæði úr alvarlega. Ég leyfi mér að fullyrða að erfitt sé að finna nokkra bók, sem verr er til þess fallin að byggja kristinn hjónabandsskilning á, en ritasafn Gamla testamentisins – alltjent ef lögbók hirðingjaþjóðar frá bronsöld er skilin bókstaflega og hvorki er reynt að lesa þetta ritasafn í samhengi ritunartíma síns og menningarsögulegs bakgrunns, innbyrðis samhengi sögunnar, sem þar er sögð, né að greina kjarnaboðskap hennar. Þeir, sem lesa Gamla testamentið með þessum hætti, mættu hafa hina kristilegu grundvallarafstöðu í huga: „Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd." (Lúk 6.37)

En á hverju eigum við þá að byggja „kristinn" hjónabandsskilning? Þetta kann að hljóma langsótt en kannski væri óvitlaust að byggja hann á Kristi sjálfum: „Á því munu allir þekkja að þér eruð mínir lærisveinar ef þér berið elsku hver til annars." (Jóh 13.35)

 

Davíð Þór Jónsson - Áróðursmeistari kærleikans


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En á hverju eigum við þá að byggja "kristinn" hjónabandsskilning? spyr þú!

Hvernig væri að taka fram Orð Jesú t.d í Matt. 19: 4 - 6

"Hafið þér eigi lesið að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu og sagði: "Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinn og þau tvö skulu verða einn maður. Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman má maður eigi sundur skilja."

snorri (IP-tala skráð) 18.2.2012 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband