Hugleiðsla er kjarni yogaiðkunar

 

Ummyndun hugans, sem náð er með yoga er lýst í hinum ýmsu hefðum sem nýrri fæðingu sem verður eftir dauða hins gamla sjálfs. Kathopanishad ritin segja að yoga sé fæðing og dauði. Hinn þjóðsagnakenndi fönix, sem endurfæðist eftir að hafa brunnið til ösku, hinn táknfulli dans sem fram fer á eldvellinum, rósin sem sprettur úr krossi fórnarinnar, og önnur táknform vísa til endaloka hins gamla, þannig að ný vitund geti komið í ljós. Í hinum sígilda texta Patanjalis, er yoga það að þagga niður í hinum veraldlega huga og hin nýja fæðing er að vakna til hins sanna eðlis vitundarinnar. ...

Hugleiðsla er kjarni yogaiðkunar. Hún er ekki eins og hvert annað starf. "Ef ekki er hugleiðing, þá ertu eins og blindur maður í heimi mikillar fegurðar, ljóss og lita" (Krishnamurti). Hún er eins nauðsynleg fyrir þróun hins andlega eðlis eins og fæða er fyrir vöxt líkamans. En hugleiðsla fyllir ekki vitundina né markar heilann meiri áhrifum og minningum. Hún tæmir hann af innihaldi sínu. Margt af því sem við höfum verið að athuga til þessa býr hugann undir innra frelsi.

Radha Burnier - Hin alheimslega yogahefð


 

 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: josira

Takk fyrir þessi orð ...

josira, 25.3.2012 kl. 01:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 96356

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband