Guðspekifélagið var fyrsta félagið sem vakti athygli á austrænum viðhorfum á Vesturlöndum

 

Guðspekifélagið [Heitir nú Lífspekifélagið] var fyrsta félagið sem vakti athygli á austrænum viðhorfum á Vesturlöndum. Þau voru talin áhugaverð þótt engin væri hvattur til að taka þau beinlínis upp og fleygja sínum gömlu viðhorfum. Það var líka fyrsta félagið sem hvatti til frjálsrar stúdíu á dulrænum fræðum almennt, bæði austrænum og vestrænum. Og nú skipta þau félög, skólar og stofnanir tugum, ef ekki hundruðum, sem beint eða óbeint eiga rót sína að rekja til þessa kynningastarfs.

Hin mystíska hreyfing nútímans í heild er frá Guðspekifélaginu runnin.

Hvað er hin mystíska hreyfing?

Í heiminum starfar nú mikill fjöldi félaga, reglna, skóla og ýmissa annarra stofnana sem lýsir yfir áhuga á hinni duldu hlið lífsins, óskýrðum andlegum möguleikum mannsins og hverju einu sem lýtur að torskildum þáttum í manninum og náttúrunni, þessu sem ekki vill falla inní hina viðteknu mynd af tilverunni. Þar að auki starfar mikill fjöldi manna á eigin vegum á þessu sviðum, og trúa gæti ég því, og er ekki heldur einn um þá skoðun, að fjöldi þeirra manna sem undir þetta heit má flokka í dag skipti miljónum.

En Guðspekifélagið í heiminum telur aðeins tæplega 35 þúsund félagsmenn, hefur eiginlega aldrei verið mikið fjölmennara.

Einstakir hópar og flokkar innan þessarar hreyfingar eru auðvitað misjafnir að ,,gæðum”, iðka mis-merkileg fræði og á mis-vísindalegan hátt, en allir eru þeir þó á sinn hátt vitnisburður um vilja mannkynsins til að byrja nýtt líf. Og til þess að byrja nýtt líf þarf að uppgötva eitthvað nýtt í manninum.

Heimur mannanna í dag er í upplausn. Hann er orðin samgöngulega ein heild – sem leitt hefur í ljós að menn kunna ekki að lifa saman eins og menn, eins og bræður.

Svar við þessum vanda er vafalaust nýr skilningur á manninum, að hver og einn sjái sjálfan sig og sambandið við aðra í nýju ljósi. En á þennan möguleika voru guðspekifélagar að reyna að benda í öndverðu.



Sigvaldi Hjálmarsson 1975

Lesa greinina í heild: http://www.gudspekifelagid.is/gudspekifelagid/um_stofnun_gudspekifelagsins_1.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 96355

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband