Um mannshugann - Anna Valdimarsdóttir

Mannshugurinn er meistari í að leysa ytri vandamál. Við þurfum ekki lengur að skjálfa úr kulda í sauðskinnsskóm og skjóllitlum fatnaði, þurfum ekki að hætta lífi og limum þegar við leggjum upp í ferðalög, þurfum ekki að láta okkur nægja rímnakveðskap í rökkrinu þegar okkur langar í afþreyingu né leggja okkur hrátt kjöt til munns þegar við erum svöng (nema okkur langi í dýrindis carpaccio eða grafið hangiket). Mannshugurinn hefur ekki einungis fundið snjallar lausnir á aðkallandi vandamálum hann hefur líka fyllt líf okkar als kyns þægindum og tækniundrum.

Hvers vegna erum við þá ekki hamingjusamari? Þegar ég hugsa um það sé ég forfeður okkar fyrir mér rísa úr gröfum sínum og neðri kjálkana síga á hauskúpunum þegar þeir virða fyrir sér nútímaundrin og tæknibrellurnar. Ég sé fólkið fyrir mér sem rétt skrimti eða dó um aldur fram af harðindum, vosbúð og kulda líta hvert á annað og sömu hugsun lýsa úr öllum tómu augntóttunum: Vá, hvað fólkið hlýtur að vera ánægt sem nú er uppi.

En hvað mundi gerast ef forfeður okkar og formæður fengju að skyggnast inn í andlega líðan okkar? Mundu þau ekki bara hrista hvítar hauskúpurnar hvert framan í annað og skrölta beina leið oní grafirnar aftur? Því andleg líðan og hugarástand eru ekki í neinu samræmi við þægindin sem umkringja okkur. Óánægja með eigið útlit, atgervi og lífsafkomu er allsráðandi og aldurinn færist sífellt neðar þegar fólk fær sitt fyrsta alvarlega þunglyndiskast.

Lesa í heild hér: http://lifspekifelagid.is/greinasafn/Anna_Valdimarsdottir/um_mannshugan.html 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 96344

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband