Höfðu dulspekingarnir rétt fyrir sér? Nýtt meginland fundið á botni Indlandshafs

Árið 1864 setti enski land- og dýrafræðingurinn Eric Sclater fram djarfa kenningu. Hann hafði verið að velta fyrir sér af hverju sumt í dýralífi eyjarinnar Madagaskar við Afríkustrendur virtist skyldara dýralífi Indlands en Afríku. Og kenning hans var sú að Indland og Madagaskar hefðu í fyrndinni verið tengd.

Bæði hefðu verið hluti af gríðarstóru landflæmi sem fyllti upp í nálega allt það svæði sem nú er Indlandshaf, en mestur hluti þess hefði síðar sokkið í sæ.

Sclater var reyndar ekki sá fyrsti sem lét sér detta þetta í hug. En hann gekk lengra í kenningasmíðinni en áður hafði verið gert, og gaf meira að segja nafn því sokkna meginlandi sem hann taldi hafa verið milli Indlands og Madagaskar.

Hann kallaði það Lemúríu með tilliti til lemúranna sem byggja Madagaskar, þótt reyndar muni skilningur hans á skyldleika lemúra við aðra prímata hafa verið fremur lítill.

Kenning Sclaters vakti nokkra athygli en brátt sannfærðust vísindamenn þó um að hún gæti ekki verið rétt. Engin merki fundust um það stórfenglega horfna meginland sem þurfti til að ná milli Indlands og Madagaskar. Þegar komið var töluvert fram á 20. öld náði svo landrekskenning Wegeners loksins fótfestu og skýrði flest af því sem Sclater hafði verið að glíma við.

Indland og Madagaskar höfðu verið tengd hvort við annað, en síðan rekið í sundur vegna krafta í iðrum jarðar.

Þótt jarðvísindamenn hafi afskrifað hugmyndir um Lemúríu, þá lifði hún áfram í verkum dulspekinga alls konar. Þeir höfðu strax heillast af kenningunni um hið horfna meginland. Hinn frægi dulspekingur Helena Blavatsky komst til dæmis í dulrænt samband við Lemúríu og komst að því að þar hefði eitt sinn búið risavaxið og hreinlundað mannkyn sem var tvíkynja og verpti eggjum.

 

Lesa greinina í heild: http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/hofdu-dulspekingarnir-rett-fyrir-ser-nytt-meginland-fundid-a-botni-indlandshafs 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Komiði sæl.

Það hafa orðið margar pólveltur á jörðinni í gegnum þúsundir ára sem rugla alla söguna en hérna kemur besta útskýringin að mínum dómi:

http://www.facebook.com/pages/Atlantis/457438264292230?ref=ts&fref=ts

Bestu kveðjur

Jón Þórhalls

Guðspsekifélagssinni

Jón Þórhallsson, 26.2.2013 kl. 00:33

2 Smámynd:                                           OM

Takk fyrir þetta.

Kveðja, Leifur

OM , 27.2.2013 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 96329

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband