Lífspekifélagið - Félag fyrir þá sem ekki vilja vera í félögum

Mig langar í þessu sambandi að tilfæra orð Sigvalda Hjálmarssonar um Guðspekifélagið [Heitir nú Lífspekifélagið] í gömlu erindi, en hann orðaði þessa hluti manna best sem ég þekki. Hann sagði eitthvað á þessa leið:

   ,,Þörf er á félagi sem tekur alla tilveru mannsins fyrir sem eina heild og er utan við alla skóla og sérgreinar, og án þess að verða sjálft þannig ... Félag sem er leið milli trúar og vísinda; finnur vísindin í trúnni og andlegheitin í vísindunum ... Félag fyrir þá sem vilja vita sjálfir og reyna fyrir sér sjálfir ... sem vilja rannskaka og gefa gaum að ýmsu sem enginn annar vill gefa gaum ...  Að athuga hvaðeina eins og það er. Td. Taoisma eins og Taoistar skilja hann ... Að athuga þann möguleika að bæta heiminn með því að bæta sjálfan sig.

   Félagið á að vera opinn vettvangur fyrir beinar alhliða athuganir einstaklinganna á eðli mannsins, lífi hans og vitund.

   Félagið er samtök sem byggjast á frelsi ... Ekki samtök manna sem hafa sömu skoðanir, heldur hafa áhuga á sömu athugunum.

   Slíkt félag er mögulegt nú á tímum vegna vitundarþroska, þekkingar og samgangna sem gerir mögulegt að tengja saman menningarheildir, heimspeki, trú og vísindi allra tíma. Við vonum að fólk sé komið á það stig að gera athugað án þess að vera annaðhvort með að á móti. og þar með er komin ný merking í hugtakið ,,aðhyllast": Að telja eitthvað þess virði að það sé athugað gaumgæfilega.

Guðspeki [Lífspeki] er þá að nálgast sannindin sífellt betur og betur, óháð kenningum og kennisetningum og leyfa sér ekki að stansa við neinar niðurstöður."

...

Ég hygg að Guðspekifélagið [Lífspekifélagið] komist næst því að geta hýst þessa manntegund, því það er eiginlega ,,félag fyrir þá sem ekki vilja vera í félögum." 

 

Brot úr grein eftir Geir Ágústsson sem birtist í hausthefti Ganglera árið 1987.

Hægt er að fá gömul hefti af Ganglera á 100 kr. í Lífspekifélaginu.

www.Lifspekifelagid.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Góðan daginn

Ég lít á Guðspekifélagshugsun sem góða VIÐBÓT við KRISTNA trú.

=Fyrir þá sem vilja LEITA LAUSNA, kafa dýpra í fræðin og skiptast á skoðunum.

Mér finnst stefnuskráin ykkar góð en finnst þið vera of mikið indlandsmegin í lífinu.

Jón Þórhallsson, 13.3.2013 kl. 11:03

2 Smámynd:                                           OM

Sæll og takk fyrir innlitið. Sammála þér með stefnuskrána, svo er það bara þannig að sumir vilja vera sólskinsmegin í lífinu

Kveðja, Leifur

OM , 13.3.2013 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1755205790198
  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 96802

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband