Flest okkar eyða ævinni innilokuð í fangaklefa eigin hugsunar

Flest okkar eyða ævinni innilokuð í fangaklefa eigin hugsunar. Sjálfsupplifunin, skilyrt af fortíðinni og viðhaldið af misjafnlega sjálfhverfri hugsun, takmarkast við þær hugmyndir sem við gerum okkur um það sem við köllum ,,ég”.

Samt er í okkur öllum vitundarvídd sem nær miklu dýpra en nokkur hugsun. Og hún er kjarni þess sem við erum. Við getum kallað hana núvist, varurð eða óskilyrta vitund, en líka Búddaeðlið eða Krist hið innra.

Þegar við finnum þessa vídd frelsum við okkur og heiminn undan þeirri þjáningu sem við bökum sjálfum okkur og öðrum með hugsun og líferni sem takmarkast fyrst og síðast við ,,elsku mig”. Og varanlegan innri frið, kærleik, fögnuð og sköpunargleði öðlumst við ekki nema við hvílum í þessari óskilyrtu vitund.

Ef þú getur borið kennsl á hugsanir sem hugsanir einvörðungu, þótt ekki sé nema stöku sinnum, ef þú getur þar að auki verið vitni að tilfinningaviðbrögðum þínum þegar þau eiga sér stað, þá er þessi vitund þegar að verki í þér. Hún er varurðin þar sem hugsanir og tilfinningar birtast, tímalaust innra rými þar sem lífi þínu vindur fram. 

Eckhart Tolle – Kyrrðin talar (Stillness speaks)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 96329

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband