13.5.2009 | 10:47
Hljóður hugur
Hljóður hugur Grein eftir Jónínu Michaelsdóttur
Í yfirstandandi hremmingum og úrræðaleysi hefur verið sístreymi í fjölmiðlum af sérfræðingum, innlendum og erlendum, sem hafa skilgreint ástandið á Íslandi og bent á lausnir.
Í yfirstandandi hremmingum og úrræðaleysi hefur verið sístreymi í fjölmiðlum af sérfræðingum, innlendum og erlendum, sem hafa skilgreint ástandið á Íslandi og bent á lausnir. Menntun, reynsla og orðspor þessara manna vekur virðingu og vonir um að þeir færi okkur skýrar línur og viðráðanlegan vegvísi á leiðinni fram undan. Sumir eru svo traustvekjandi og vel máli farnir að óvenjulegt hlýtur að teljast. Að minnsta kosti hér á landi. Vandinn er sá að þeim ber ekki saman. Við það verða hlutirnir enn flóknari.
Í byrjun maí kom hingað til lands heimsfrægur listamaður með góð ráð í farteskinu. Þau lúta ekki að efnahagskreppunni eða Evrópusambandinu, heldur manneskjunni. Okkur sjálfum. Kvikmyndaleikstjórinn David Lynch kom sem sagt til að kynna okkur mátt innhverfrar íhugunar. Með henni myndi íslenska þjóðin geta öðlast heilbrigði, sköpunarmátt, velmegun og frið, og upplifa framfarir sem erfitt væri fyrir hana að ímynda sér í dag. Í tilkynningu kom fram að innhverf íhugun væri einföld og auðlærð tækni sem miðaði að því að þroska andlegt og líkamlegt atgervi til fullnustu. Tæknina iðkuðu menn í 20 mínútur tvisvar á dag, sitjandi á stól, og með lokuð augun.
Þjóðin tók þessu tilboði fagnandi, troðfyllti sal og ganga Háskólabíós, og David Lynch kom, sá og sigraði í sjónvarpi og öðrum fjölmiðlum. Frægð hans hafði auðvitað aðdráttarafl, en maðurinn sjálfur virtist einkar viðfelldinn, sannfærandi og blátt áfram. Þetta var góð heimsókn og tilboð Davids Lynch getur breytt líðan og lífi þeirra sem taka því. Það vita þeir sem hafa náð tökum á kyrrð í anda og efni.
Hugræn tækni er að því leyti eins og trúarbrögð og stjórnmálaflokkar, að einstaklingar og þjóðir nálgast sama fjall frá mismunandi hliðum, en eru allir með augun á sama tindinum. Þegar ég kynntist Sigvalda Hjálmarssyni varð ég margs vísari. Sigvaldi var afar merkur maður. Við sátum hvort á móti öðru í Blaðaprenti á sínum tíma við prófarkalestur á Vísi og urðum ævivinir. Hann átti langan og farsælan blaðamennsku- og ritstjórnarferil, var forseti Íslandsdeildar Guðspekifélagsins og í stjórn Evrópusambands þess. Eftir hann liggja níu bækur. Titill einnar þeirra, Haf í dropa, segir meira en mörg orð.
Sigvaldi rak hugleiðsluskóla á heimili sínu, þar sem hann kenndi hvernig ætti að kyrra líkamann og síðan hugann. Markmiðið var hljóður hugur. Skömmu áður en hann féll frá hlustaði ég á hann flytja fyrirlestur í húsi Guðspekifélagsins, og uppgötvaði allt í einu að ég hafði af einhverjum ástæðum aldrei séð hann sjálfan í ræðustól. Það var ógleymanlegt. Hann talaði blaðalaust og varð allt í einu magnað en kyrrlátt máttarvald. Ræðan beinskeytt og innihaldsrík. Þegar ég hitti hann á eftir, sagðist ég alls ekki hafa gert mér grein fyrir hver hann væri fyrr en hann stóð þarna í ræðustólnum. Ef hann byggi í Bandaríkjunum, væri hann með hundruð þúsunda fylgismanna í kringum sig."Þá byggi ég ekki í Bandaríkjunum," sagði Sigvaldi brosandi.
Ég man ekki hvaða ár það var sem ég las opnuviðtal við Véstein Lúðvíksson rithöfund í Þjóðviljanum. Fyrirsögnin var "Frá sósíalisma til zen" og blaðamaðurinn hét Össur Skarphéðinsson, ef mig misminnir ekki. Þetta var flott viðtal og skömmu síðan var Vésteinn beðinn um að flytja erindi hjá Guðspekifélaginu. Hann stóð ekki í ræðustólnum, heldur sat á stól fyrir framan hann, talaði blaðalaust og skipulega og hreyfði hvorki legg né lið. Aðeins orðin höfðu líf. Hann var beðinn um að halda námskeið um zen-iðkun og gerði það. Upp úr þessu varð smám saman til hópur zen-iðkenda, sem síðar stofnuðu eigið félag, sem nú er orðið talsvert öflugt. Leiðbeinandi þeirra, Jakuho Kwong-roshi, kemur á hverju ári til Íslands til að leiðbeina zen-félögum; roshi, merkir viðurkenndur zen-meistari.
Í Lótushúsinu í Kópavogi er kennd Raja Yoga-hugleiðsla. Þetta er íslensk miðstöð Brama Kumaris World Spiritual University. Henni er stýrt af tveimur listamönnum, Sigrúnu Olsen og Þórði Barðdal. Brama Kumaris-miðstöðvar eru víða um heim og njóta virðingar. Stjórnendur eru alls staðar konur.
Margir fleiri kenna það sem kölluð er innhverf íhugun hér á Íslandi. Heimsókn David Lynch hlýtur að vekja athygli á þeim möguleikum sem Íslendingum um allt land stendur til boða, sækist þeir eftir hljóðum huga.
Um bloggið
OM - ॐ
Færsluflokkar
Tenglar
Hugleiðslunámskeið á Íslandi
- Námskeið hjá Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni
- Sahaja yoga-hugleiðsla
- Hugleiðslunámskeið hjá Brahma Kumaris
- Sri Chinmoy miðstöðin á Íslandi
- Andartak.is - Kundalini jóga og hugleiðsla
- Zen-hugleiðslunámskeið
- Dharma.is - Innsæishugleiðsla
- Innhverf íhugun
Frí hugleiðslunámskeið á Netinu
- Free Meditations
- Námskeið í búddískri hugleiðslu
- Námskeið í Kundalini yoga
- Free online meditation course
- Free Sahaja meditation course online
Hugleiðsla
Hér er að finna tengla þar sem þú getur lært og kynnt þér hugleiðslu.
- Listin að hugleiða
- Zen á Íslandi - Zen-hugleiðsla
- Kristbjörg
- Kundalini-hugleiðsla
- Hugleiðslu- og friðarmiðstöðin
- SGI-búddismi á Íslandi
- Sri Chinmoy miðstöðin á Íslandi
- Skandinavíski yoga- og hugleiðsluskólinn
- Leiðbeiningar fyrir Zen-hugleiðslu
- Sahaja Yoga
- Brahma Kumaris - Raja Yoga hugleiðsla
- Jack Kornfield - Insight Meditation (vipassana)
- Centerpointe
- Ljósmiðlun
- Traditional Yoga and Meditation of the Himalayan Masters
- Innhverf íhugun
- Vipassana meditation course
Helg forn rit
- Veda-ritin
- Bhagavad Gita
- Bhagavad Gita
- Upanishads
- Upanishads
- Shiva sutra
- Brahma Sutra
- Yogasútrur Patanjalis
- Rig Veda
- Sama Veda
- Hatha Yoga Pradipika
- Shiva Samhita
- Gheranda Samhita
- Sacred Texts (Helg indversk rit)
- Biblían
- Dhammapada
- Kóraninn
Tímarit um andleg málefni
- Tímaritið Knowledge of reality
- Bindu - Tímarit Skandinavíska yoga- og hugleiðsluskólans
- Tímaritið Gangleri
- Primary Point - Zen
- Efnisskrá Ganglera frá 1926
- The Sufism Journal online
- The Theosophist
Bækur á íslensku um andleg málefni
- Starfsrækt (Karma yoga) - Swami Vivekananda
- Allar bækur Gunnars Dal
- Bækur eftir Alice Baily
- Martínus - Bækur á íslensku
- Launviska Vedabóka
Bækur um andleg málefni
- The Unknown Life of Jesus Christ
- Bók um Kriya Yoga
- Sjálfsævisaga Jóga
- Whispers from Eternity - Paramahansa Yogananda
- The Path - Swami Kriyananda
- God is for Everyone - Inspired by Yogananda
- My time with the master - Paramahansa Prajnanananda
- The Universe Within - Paramahansa Prajnanananda
- The art and science of Raja Yoga - Swami Kriyananda
- Complete work of Swami Vivekananda
- Gopi Krishna - Bækur, greinar og viðtöl
- Bókin Zen and the brain
- Zen Mind, Beginner´s Mind - Shunryu Suzuki-roshi
- Manual of Zen Buddhisim - D. T. Suzuki
- Stripping the Gurus
- Rödd þagnarinnar á ensku
- Eckhart Tolle - Stillness Speaks - Hljóðbók
- Bækur eftir Ramana Maharshi
- Saundarya Lahiri
- The Meditative Mind - Krishnamurti
- Krishnamurti´s Notebook
- Meditations - Krishnamurti
- The Serpent Power
- C. W. Leadbeater - Chakras: A Monograph
- Kundalini Yoga - Swami Sivananda
- Fríar bækur með Krishnamurti
- The Tibetan Book of Dead
- Karma Yoga - Swami Vivekananda
- Leiðarljós (Light on the Path) á ensku
- The Power of Now - Hljóðbók
- Hljóðbókin Breath sweeps mind eftir Jakusho Kwong-roshi
- Opening the Hand of Thought Bók eftir Kosho Uchiyama
- To shine one corner of the world : moments with Shunryu Suzuki : stories of a Zen master told by his students
- How to Cook your Life - Dogen
- The Art of Just Sitting: Essential Writings on the Zen Practice of Shikantaza
- On Zen Practice
- On Having No Head
Greinar um andleg málefni
- Greinasafn Lífspekifélagsins/Guðspekifélagsins
- Greinar eftir Sigvalda Hjálmarsson
- Greinar og rannskóknir tengdar kundalini
- Krishnamurti - Greinar, viðtöl og tilvitnanir
- Hugleiðingar um kenningar Sigvalda Hjálmarssonar - I. Hluti
- Hugleiðingar um kenningar Sigvalda Hjálmarssonar - II. hluti
- Greinar úr zen-tímaritinu Primary Point
- Greinar eftir dr. Erlend Haraldsson
- Greinasafn Jóns L. Arnalds
- Yður er í dag frelsari fæddur? - Njörður P. Njarðvík
- Yoga og geðrækt
- Leiðin til hugljómunar - Sigvaldi Hjálmarsson
- Geinar úr tímaritinu Quest
Ýmsir tenglar andlegs eðlis - Íslenskir
- Kærleikssetrið
- Jógakennarafélag Íslands
- Lífspekifélagið/Guðspekifélagið
- AA
- CoDa
- Viska og gleði
- Kærleikssamtökin
- Björg Einarsdóttir
- Trú.is
- LAUSNIN - Baráttusamtök gegn meðvirkni
- Dharma.is - Innsæishugleiðsla
- Dulheimar - Andleg þróunarheimspeki
- Vetrarbrautin.com
- Listi yfir skráð trú- og lífskoðunarfélög á Íslandi
Ýmsir tenglar andlegs eðlis - Erlendir
- DharmaTalk með Thich Nhat Hanh
- Agni Yoga
- Meditation of the Himalayan Masters
- Vedanta Society
- Vedanta.com
- tantra-kundalini.com
- Ayurveda-próf - Hvaða líkamsgerð ertu?
- Prajnanamission
- Big Mind
- Vedanta Spiritual Library
- Great Integral Awakening
- Sounds True
- Wildmind - Buddhist Meditation
- Institute for Consciousness Research
- Biology of Kundalini
- Kundalini Research Network
- Hindu Tantrik Tradition
- Inner Self
- Spirit Voyage
- Dalai Lama kyrjar möntru úr Rig Veda
- Ýmislegt um Ramakrishna
- The Five Tibetan Rite
- Message from masters
- Bæklingur um sanskrítarframburð
- The Theosophical Society - International Headquarters
- Sri Vidya
- Vedanet
- Eastern tradition - Eastern Tradition Research Archive
- Lífspekifélög/Guðspekifélög um allan heim
Ýmsir andans menn
- Sigvaldi Hjálmarsson
- J. Krishnamurti
- Ken Wilber
- Gopi Krishna
- Swami Sivananda
- Osho
- Deepak Chopra
- Swami Vivekananda
- Sri Ramakrishna
- Yogi Hari
- Eckhart Tolle
- Yogi Shanti Desai
- Yogi Amrit Desai
- Shunryu Suzuki roshi
- Ramana Maharishi
- Sri Aurobindo
- Paramahansa Yogananda
- Paramahamsa Hariharananda
- Jakusho Kwong-roshi
- Jack Kornfield
- Swami Rama
- Grétar Fells
- D. T. Suzuki
- Dalai Lama
- Thich Nhat Hanh
- Eckhart Tolle
- Helena Blavatsky
- Paramahamsa Prajnanananda
- Rupert Spira
- Bodhidharma
- Om Swami
Lífspeki/Guðspeki
- Lífspekifélag Íslands
- Lífspekifélagið í USA
- Helena Blavatzky
- Facebook-síða Lífspekifélags Íslands
- Aðalstöðvar Lífspekifélagsins á Indlandi
Kriya Yoga
Hér er að finna tengla tengda Kriya Yoga
- Kriya Yoga Institute
- Paramahansa Hariharananda
- Paramahamsa Prajnanananda
- Bækur um Kriya Yoga eftir Hariharananda og Prajnananda
- Self-Realization Fellowship
- Ananda: The Teaching of Paramahansa Yogananda
- Cyberspace Ashram for Kriya Yoga
- Bókin Sjálfsævisaga jóga (Autobiography of a Yogi)
- Kriya Yoga - Swami Shankarananda Giri
- Kriya Yoga - Yogi Dhirananda
- Bók um Kriya Yoga á Netinu
- Kriya Yoga in the Lahiri Mahasaya family tradition
- Babaji´s Kriya Yoga
- Myndbönd um kriya yoga
- Prajnanamission
- Babaji Kriya Hatha Yoga - 18 Kriya Postures
- Umsókn - Kennslustundir hjá SRF
Hatha Yoga (Líkamsstöður - Teygjur)
- Yogavin
- Jóga hjá Kristbjörgu
- Jóga Stúdíó
- Jógakennarafélag Íslands
- Jóga Jörð
- Jen Reviews
- Sólir
- Yogashala
- Jógakennarar og jógastöðvar á Íslandi
Zen
- Zen á Íslandi
- Sonoma Mountain Zen Center
- Bókin Zen Mind, Beginners Mind eftir Shunryu Suzuki-roshi
- Bókin No Beginning. No End eftir Jakusho Kwong-roshi kennara Zen á Íslandi
- Hljóðbókin Breath Sweeps Mind eftir Jakusho Kwong-roshi
- The Teaching of Shunryu Suzuki-roshi
- San Francisco Zen Center
- Myndbönd með Suzuki-roshi
- Plum Village - Thich Nhat Hanh
- Zen of Recovery - Mel Ash
- Zen Road
- Zen sútrur
- Kwan Um School of Zen
- Daily Zen
- Big Mind
- Zen Peacemakers
- Suzuki-roshi 50
- Hljóðbókin Zen mind, beginner´s mind
- The Suzuki Roshi Audio Archive
- Opening the Hand of Thought Bók eftir Kosho Uchiyama
- To shine one corner of the world : moments with Shunryu Suzuki : stories of a Zen master told by his students
- How to Cook your Life - Dogen
- The Art of Just Sitting: Essential Writings on the Zen Practice of Shikantaza
- On Zen Practice
Bloggvinir
- thesecret
- gudjonbergmann
- gyda
- heringi
- gudmundurhelgi
- braxi
- fruheimsmeistari
- vilborg-e
- steina
- ludvik
- maggadora
- baenamaer
- perlaheim
- vestfirdir
- vglilja
- palmig
- einherji
- andreaolafs
- flinston
- birnarebekka
- tilfinningar
- dizadj
- gylforce
- esa-emorea777
- estersv
- eydis
- gudjonelias
- heildraent-joga
- heildraent-lif
- guru
- tru
- fun
- jensgud
- josira
- katrinsnaeholm
- kari-hardarson
- kiza
- kjarvald
- kristinnhalldor
- kiddirokk
- krilli
- laufherm
- mariaannakristjansdottir
- manisvans
- nanna
- aronsky
- huldumenn
- ragjo
- rose
- straitjacket
- vinur
- nimbus
- slembra
- svanurg
- toshiki
- hanoi
- thorhallurheimisson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 95187
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.