Sjálfsævisaga yoga - Útgefandi óskast

„Engillegi meistari, fyrst þú hefur veitt mannkyninu þá náð, að vekja til lífsins hina horfnu kriya list, vilt þú þá ekki auka þessa blessun með því, að slaka á hinum ströngu fyrirmælum um lærisveina?“ Ég [Lahiri Mahasaya] horfði biðjandi á Babaji. Má ég biðja þess, að þú leyfir mér að miðla kriya til allra leitenda, enda þótt þeir geti ekki strax í upphafi lofað innra afsali. Hinir þjáðu karlar og konur veraldarinnar, ofsótt af hinni þreföldu þjáningu, þurfa sérstaka uppörvun. Ef til vill reyna þeir aldrei leið frelsisins, ef þeim er synjað um kriya-vígsluna.

„Svo skal vera. Þú mátt fúslega veita öllum kriya, sem auðmjúklega biðja um hjálp. Hin heilaga ósk hefur verið látin í ljós fyrir munn þinn.“ Með þessum látlausu orðum hins miskunnsama meistara, var afnumin hin stranga vernd, sem öldum saman fól kriya fyrir veröldinni.

  

Sjálfsævisaga yoga – Paramahamsa Yogananda. Ingibjörg Thorarensen þýddi.

Ég fékk þessa frábæru bók loks í hendur í fyrradag eftir margra ára leit, það er margt að finna í Kolaportinu. Ég er enn að leita að útgefanda til að endurútgefa þessa þýðingu Ingibjargar frá árinu 1970 en bókin hefur ekki komið út á íslensku síðan þá. Ef einhver sem þetta les veit um einhvern áhugasaman útgefanda þá væri gott að fá að vita að. Skiljið endilega eftir athugasemd eða sendið mér póst: leifurhl(hja)gmail.com  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Hvað er bak við myrkur lokaðra augna"... man eftir að hafa lesið þá bók í gamla daga og sjálfsævisöguna, nema það sé sama bókin ?... minnir að fylgjendur hafi fundið rósailm eða jafnvel enga lykt af líkinu lengi eftir andlát... skil ekki hvað þau voru að gera með líkið svona lengi en það er nú önnur saga :).... líklega ekki hlustað nægilega vel á fræðara sinn sem var ekki í líkamanum lengur :) !

En hvað sem því líður man ég eftir að hafa notið lestursins og góðir djúpspakir straumar yfir vötnunum., það er með svona bækur að þó maður muni ekki einstaka orð, þá skilja þau eftir óm í sálinni, óm sem gefur.

Fín hugmynd að gefa bókina aftur út !... læt vita ef ég rekst óvart á mögulegan útgefanda.

Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 16.12.2009 kl. 02:13

2 Smámynd:                                           OM

Þetta er sama bók. Í fyrri útgáfunni, sem kom út að mig minni 1958, hét bókin ,,Hvað er bak við myrkur lokaðra augna". Svo endurútgaf Ingibjörg bókina undir nafninu Sjálfsævisaga jóga. Já, bókin er mjög góð og hafði mikið áhrif á mig þegar ég las hana.

Kv. LL

OM , 16.12.2009 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1755205790198
  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband