Um þögn

 

Um þögn

Djúpt niðrí vitundinni, handanvið rót hugsunarinnar, er ríki þagnar.

Leggðu til hliðar allar kenndir, kyrrðu hugann og vertu þessi þögn, því þögnin er þú.

Hugsaðu ekki um þögnina, vertu þögnin.

Lærðu að sleppa.

Í þögninni hefur þú ekkert nafn, enga stöðu. Þú ert hvorki A né B, þú bara ert, einsog úthaf án stranda eða himinn án stjarna, endalaus víðátta og rúm hinnar algeru þagnar.

 

Sigvaldi Hjálmarsson - Eins konar þögn. Ábendingar í hugrækt. Tekið úr kaflanum Enn meiri æfingar.


Er Guðseindin fundin?

 

Talið er að leit kjarneðlisfræðinga hjá CERN að Higgs-bóseindinni hafi borið árangur. Vísindamennirnir hafa notast við Stóra sterkeindahraðalinn á landamærum Frakklands og Sviss í leit sinni að eindinni.

Vísindamennirnir hafa boðað til blaðamannafundar þar sem niðurstöður tilraunanna verða kynntar. Ekki er vitað með vissu hvort að tilvist Higgs-bóseindarinnar verði staðfest á fundinum sem samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum CERN hafa tilraunirnar borið árangur.

Higgs-bóseindin er talin vera eitt dularfyllsta fyrirbæri náttúrunnar. Fyrstu hugmyndir um Higgs-bóseindin voru settar fram fyrir rúmum 40 árum. Í dag er hún þungamiðja í staðallíkani eðlisfræðinnar. Talið er að Higgs-bóseindin geti svarað spurningum vísindamanna um eðli alheimsins. Sumir eðlisfræðingar telja bóseindina bera ábyrgð á því að efni hafi massa.

Higgs-bóseindin hefur oft verið kölluð Guðseindin.

Tilgangur Stóra sterkeindahraðalsins hverfist þó ekki aðeins um leitina að Higgs-bóseindinni. Vísindamenn vonast til að þess að hraðallinn muni veita upplýsingar um upphaf alheimsins sem og eðli svarthola.

Stóri sterkeindahraðallinn er dýrasta og metnaðarfyllsta vísindaverkefni allra tíma. Hraðallinn er staðsettur á landamærum Frakklands og Sviss. Hann er á 175 metra dýpi og er ummál hans 27 kílómetrar.

Talið er að heildarkostnaður verkefnisins sé um 450 milljarðar íslenskra króna.

 

Sjá frétt: http://www.visir.is/er-gudseindin-fundin-/article/2011111209019


Alex Grey ... there is a God, there is Spirit ...

 

 

Alex Grey might be the most significant artist alive. In a world gone postmodern, bereft of meaning and value, cut loose on a sea of irony and indifference, Alex is taking a stunning stand: there is a God, there is Spirit, there is a transcendental Ground and Goal of human development and unfolding. Higher realities are available to us, is the message of Alex Grey's art... He has set himself the extraordinary task of depicting, in art, these higher truths and here encourages all artists to find their own unique means of serving art's abiding mission.

Ken Wilber

 

 

http://integrallife.com/node/118936 

 


Meditation prevents mind-wandering - Ný rannsókn

 

A recent Yale study has verified that meditation can help improve concentration skills.

Judson Brewer, assistant professor of psychiatry and director of the Yale Therapeutic Neuroscience Clinic, found that experienced meditators are able to deactivate the specific portion of their brain that is involved with mind-wandering and often correlated with unhappiness and anxiety. The findings, published in the November edition of Proceedings of the National Academy of Sciences, support the theory that meditation can be scientifically studied and has neurological effects. The technique may also help meditators improve, as researchers will be able to use brain scans to determine whether meditation is actually having an effect.

 

Lesa greinina í heild hér


Meditation is one of the greatest arts in life

 

Meditation is one of the greatest arts in life - perhaps the greatest, and one cannot possibly learn it from anybody, that is the beauty of it. It has no technique and therefore no authority.
 

 J. Krishnamurti


Ég dó um tíma - Ég er sannfærður um það, að þetta er ákveðinn stökkpallur inn í miklu yndislegra líf

 

„Ég er sannfærður um það, að þetta er ákveðinn stökkpallur inn í miklu yndislegra líf.

Ég dó um tíma. Ég fékk brisbólgu svo heiftarlega að ég hvarf upp í loft á sjúkrastofunni á Landakoti og ég horfði niður á líkama minn, sem mér fannst vera eins og gúmmídúkka, ferlega ljót og óyndisleg.

Það hafði byrjað með því að ég sá tvær skuggamyndir af mönnum á veggnum. Svo er ég kominn upp í loft þarna og allt í einu lendi ég á landslagi þar sem eru lítil hús, sem ég lít nú á í dag að hafi verið eins konar symból um bústað.

Fyrir framan hvert hús var garður og í hverjum einasta garði – það var löng runa – var einhver að gróðursetja blóm. Mér þótti skrýtið að það voru aldrei tveir að gróðursetja blóm, heldur einn. Landslag var í raun og veru ekkert, en veðrið var heldur ekki neitt, það var logn. Húsin voru mjög vel máluð og skreytt, en trúðu mér: Þó ég leitaði í hundrað ár að sama bláa litnum sem ég sá, sama rauða litnum sem ég sá, þá mun hann aldrei finnast hér.

Þetta var fyrir handan?

Já. Þarna stend ég og ég segi allt í einu – og ég vissi af þessum tveimur verum fyrir aftan mig, ég sá þá ekki, þeir voru fyrir aftan mig – og ég segi allt í einu upphátt og það var sannleikur: „Ég er hræddur.“

Þá kemur rödd sem segir: Þú þarft ekki að vera hræddur, þú ferð aftur.“

Jónas kvað hlakka til „flutningsins“ eins og barn sem væri á leið í ferðalag í fyrsta sinn, og lýsti því sem við tæki:

„Maður fer af þessum spítala yfir á annan og það er allt gert til þess að byggja mann upp smátt og smátt. Og svo fær maður svona… fíngerðari líkama og það sem meira er: Maður getur eiginlega valið sér þann aldur sem maður var bestur á.“

Aðspurður sagði Jónas sinn besta aldur hafa verið í kringum þrítugt, „um það leyti sem við Haukur Morthens vorum með þriðjudagsþáttinn.“

Viðtali Ævars við Jónas lauk með þessum orðum hans:

„Kærar þakkir fyrir mig. Þetta er búið að vera yndislegur tími.“

Hægt er að hlusta á viðtal Ævars við Jónas með því að smella hér.


A guide to meditation

 

Meditation is an option for many people who feel overwhelmed with negative thoughts from time to time. Here, Sophie Herdman provides her soothing meditation tips.


Ask yourself the question, Who am I?

 

Ask yourself the question, Who am I?
This investigation will lead in the end to the
discovery of something within you which is behind the mind.
Solve that great problem, and you will solve all other problems thereby.

Ramana Maharshi


Þróun búddismans

Í indverskri heimspeki hafa ríkt tvær meginstefnur eða hefðir. Önnur þeirra á rætur í atma kenningu Upanishada, hin í anatma kenningu Búddismans. Veruleikinn er skilinn á tvennan aðgreindan og ósamrýmanlegan hátt. Upanishödurnar og heimspekikerfið, sem fylgt hefur Brahman hefðinni, telja veruleikann vera innri kjarna, sál eða sjálf, þ.e. atman, sem sé óbreytilegur og samur í sjálfum sér, en þó ekki tengdur eða að minnsta kosti ekki fasttengdur hinu óstöðuga og breytilega ytra sviði, sem hann er mitt inni í. Þetta viðhorf til veruleikans hefur verið nefnt kjarnaviðhorf (atma vada). Í róttækustu mynd sinni, t.d. í Advaita Vedanta, afneitar þetta viðhorf veruleika þess, sem er virðist vera óstöðugt og breytilegt, þ.e. veruleika hins margbrotna, sem er talinn blekking. Þessi hefð viðurkennir ekki aðeins atman, heldur lítur til allra hluta út frá kjarnaviðhorfinu. Atman er miðpunktur allrar háspeki, þekkingarfræði og siðfræði. Í þekkingarfræði skýrir kjarnaviðhorfið eininguna og heilleika reynslunnar. Það skýrir betur en aðrar kenningar; skynjun, minni og þá staðreynd, sem maður er. Fjötrarnir eru fáfræðin um sjálf sitt eða að samsama sjálfið eða samjafna því við það, sem það er ekki. Frelsi felst í aðgreiningu þessa. Með því að losna við heim margbreytileikans, skynjun, ímyndun, hugsanir, óskir, tilfinningar o. s. frv., nálgumst við hið sanna sjálf. Þegar þetta sjálf hefur verið hreinsað af hinu ytra, er það eitt og hið sama og alheimssjálfið, hið algilda eða Brahman. Samsömun hins smæsta við hið stærsta, innsta eðlis mannsins við guðdóminn, er hin æðsta blessun. Með því að sameinast Brahman í mystískri eða trúarlegri reynslu, verður sálin frjáls.

 

Úr greinasafni Jóns L. Arnalds

 

Lesa greinina í heild:  

http://lifspekifelagid.is/Jon_L_Arnalds/Um_Throun_Buddismans.html


Lífspekifélagið um helgina

 

25. nóv. Föstudagur kl 20:30 Þorvarður Helgason: Hlutskipti manneskju. Menn fæðast á þessa jörð og vita ekki um allt sem þeir búa yfir.

 

26. nóv. Laugardagur kl 15:30 Jón Ellert Benediktsson fjallar um Meister Eckhart. (Breyting fá áður auglýstri dagskrá).

www.lifspekifelagid.is

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 96359

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband