Flest okkar eyða ævinni innilokuð í fangaklefa ...

 

Flest okkar eyða ævinni innilokuð í fangaklefa eigin hugsunar. Sjálfsupplifunin, skilyrt af fortíðinni og viðhaldið af misjafnlega sjálfhverfri hugsun, takmarkast við þær hugmyndir sem við gerum okkur um það sem við köllum ,,ég".


Samt er í okkur öllum vitundarvídd sem nær miklu dýpra en nokkur hugsun. Og hún er kjarni þess sem við erum. Við getum kallað hana núvist, varurð eða óskilyrta vitund, en líka Búddaeðlið eða Krist hið innra.

 

 

Eckhart Tolle - Kyrrðin talar (Vésteinn Lúðvíksson þýddi)

 

 

 


Hvernig á að matreiða lífið?

 

Laugardaginn 18. mars næstkomandi kl. 10:15 - 11:15 fer fram leshringur í Nátthaga. Nú lesum við saman íslenska þýðingu Gyðu Myoji á köflum úr bókinni Hvernig á að matreiða lífið?  (How to cook your life) eftir japanska Zen meistarann Kosho Uchiyama-roshi. 

Á 13. öld skrifaði Zen meistarinn Dogen handbókina “Leiðbeiningar fyrir Zen kokkinn”. Undirbúningur máltíða í Zen klaustrum og andleg iðkun eiga sér margar hliðstæður  og í bók sinni kennir Dogen okkur hvernig á að “matreiða” lífið. Uchiyama-roshi varpar nýju ljósi á þennan sígilda texta Dogen með umfjöllun sinni, þeim sem ganga veginn í dag til gagns og blessunar. 

​Allir eru velkomnir á leshringinn. Að venju hefst dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.


Lífspekifélagið um helgina. Siðbreytingin og hugleiðing/hugleiðsla

 

17. mars föstudagur kl 20:00 heldur Dr. Gunnar Kristjánsson erindi: Áhrif siðbreytingarinnar á menningu og hugsanafrelsi á Íslandi í tilefni 500 ára afmæli siðbreytingarinnar. Siðbreytingin ruddi brautina fyrir frelsi til að hugsa og skoða sjónarmið annarra.

18. mars laugardaga kl. 15 Þórgunna Þórarinsdóttir leiðir hugleiðingu og sér um umræðuefnið.


Öll erum vér bárur á bylgjum hafsins

 

,,Öll erum vér bárur á bylgjum hafsins," sagði meistarinn. ,,Hafið getur haft tilveru, þó það hafi engar öldur, en öldur geta ekki verið il án hafsins. Á sama hátt getur andinn verið til án mannsins, en maðurinn getur ekki verið til án andans."
 
 
Spakmæli Yogananda

Lögmál andans

 

Til er leyndardómur sem margir kalla Guð.

Hann birtist okkur sem kærleikur alheimsins,

í gegnum ákveðin lögmál

og stórfenglegt þróunarferli.

Ferlið er að verki

í hverju og einu okkar

og ferlið er fullkomið.

Þegar við uppgötvum þau grundvallarsannindi,

á ferðlagi okkar um lífið,

komumst við að því að stígurinn birtist

um leið og við drepum niður fæti.

 

Dan Millman – Lögmál andans


Dagskrá Lífspekifélagsins um helgina

 

Reglulegir fundir frá byrjun okt. til loka apríl.
Fundartími á föstudögum er kl. 20. Á laugardögum
er aðaláhersla á hugleiðingu/íhugun og fræðslu tengdri henni eða annað efni. Dagskrá laugardaga kl. 15
hugleiðing/íhugun, kl. 15:20 kaffi, síðan umræðuefni

 

 

 

10. mars föstudaga kl 20:00 Halldór Haraldsson með erindi: Krishnamurti og tónlistin.

 

11. mars laugardaga kl. 15 Haraldur Erlendsson: Stefnumót við alheiminn. Tilraunir með hugræna tækni í yoga. Í nokkrum erindum verður fjallað um efni tengt bók Sigvalda Hjálmarssonar með þessu nafni.


Sharia og Sigvaldi í Lífspekifélaginu um helgina

 

3. mars föstudaga kl 20:00 Sverrir Agnarsson: Hvað er Sharia?

4. mars laugardaga kl. 15 Birgir Bjarnason leiðir hugleiðingu og fjallar síðan um efni úr fræðslubálki Sigvalda Hjálmarssonar. 


Lífspekifélagið um helgina - Jung vaknar til vitundar

 

24. feb. föstudag kl. 20. Helgi Garðarsson, geðlæknir: Ágrip af fræðum Jungs. Framhald af áður fluttu erindi.

25. feb laugardag kl. 15. Hugleiðing og síðan Anna Valdimarsdóttir, sálfræðingur: Að vakna til vitundar.


Lífspekifélagið um helgina - Rödd þagnarinnar

 

17. feb.föstudaga kl. 20. Jón Ellert Benediktsson fjallar um ritið Rödd þagnarinnar sem H.P.Blavatsky tók saman og byggir á fræðslu úr Bók hinna gullnu fyrirmæla, mystískum ritbálki sem H.P.B. kynntist í Tíbet.


18. feb. laugardaga kl. 15. Hugleiðing og síðan eftir kaffið, Jón Ben. Ellertsson: Rödd þagnarinnar. Áfram fjallað um efni bókarinnar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 96348

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband