... our minds are a bit like Grand Central Station

 

My friend Tom brought me to my first meditation group on a Sunday night at a Yoga studio 30 minutes away from where I lived. The meditation group was great but the car ride was formative.

Tom told me that our minds are a bit like Grand Central Station. Thoughts come rushing in like trains full of busy commuters. The conductor blows his whistle and each thought demands our attention. "Meditation," Tom said, "Is our chance to stand on the platform and without jumping on every train that comes through the station."

  
This stuck with me and still shapes how I think of meditation. 

Meditating gives us  a conscious choice in the stream of thoughts that come rushing out of our unconscious mind. Much of the freedom of our practice comes from being able to pick and choose which thoughts we'll let develop and which thoughts we'll let go. 

 

Sjá: http://www.zenhappinessproject.com/ 


Dagskrá Lífspekifélagsins um helgina

 

Dagskrá í húsi Lífspekifélagsins(Guðspekifélagsins) að Ingólfsstræti 22

Reglulegir fundir frá byrjun okt. til loka apríl.

Fundartími á föstudögum er kl. 20. Á laugardögum er aðaláhersla á hugleiðingu (íhugun) og fræðslu tengdri henni eða annað efni. Hugleiðing hefst kl 15:30. Siðan er kaffi kl. 16 og fræðsla eftir það. 

 

 

Föstudagur 23. jan. kl. 20.00

Gunnlaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur:

Orkukerfi og eðli mannsins.

Um er að ræða framhald af fyrirlestri um náttúrugen

mannsins, lögmál og kenningar í stjörnuspeki.

 

 

Laugardaginn 24. jan. kl. 15:30

Þórgunna Þórarinsdóttir leiðir hugleiðingu

og spjallar eftir kaffið um heildræna heilsu.


Kynningarfundur Lífspekifélagsins verður haldinn föstudaginn 16. janúar

 


Kynningarfundur

Lífspekifélags Íslands verður haldinn föstudaginn 16. janúar 2015 kl. 20:00 í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22

 

Fyrir þá sem vilja kynnast þessu félagi og starfsemi þess er þessi fundur haldinn, en þar halda þrírfélagar stutt erindi: Halldór Haraldsson, Leifur H. Leifsson og Brynja Gísladóttir.

 

Laugardaginn 17. janúar mun Birgir Bjarnason leiða hugleiðingu kl. 15:30. kl. 16:00 eru veitingar og á eftir verður Birgir með spjall og umræður. Veitingar verða ókeypis að þessu sinni, en frjáls framlög vel þegin.

 

www.lifspekifelagid.is 


Vetrar- og vordagskrá 2015 hjá Zen á Íslandi

Vetrar- og vordagskrá 2015



JANÚAR

Miðvikudagur 7. janúar
kl. 07:20
ZAZEN

Laugardagur 10. janúar
kl. 09:15
RÆÐA, Mikhael Zentetsu

Þriðjudagur 13. janúar
kl. 17.30 - 19:00
NÁMSKEIÐ, "Hugur Byrjandans" (1/4), námskeið í zen iðkun fyrir byrjendur og lengra komna

Laugardagur 17. janúar
Kaffi eftir zazen
kl. 10:15
LESHRINGUR, Antonio Costanzo
FÓRNIR ÓÐINS. TENGSL VIÐ SJAMANISMA OG BÚDDADÓM

Þriðjudagur 20. janúar
kl. 17:30 - 19:00
NÁMSKEIÐ, "Hugur Byrjandans" (2/4), námskeið í zen iðkun fyrir byrjendur og lengra komna

Laugardagur 24.janúar
Kaffi eftir zazen
kl. 10:15
LESHRINGUR, Andri Genki
"Hvað er uppljómun", þýðing úr bókinni "as it is" eftir Tulku Urgyen Rinpoche.

Þriðjudagur 27. janúar
kl. 17.30 - 19:00
NÁMSKEIÐ, "Hugur Byrjandans" (3/4), námskeið í zen iðkun fyrir byrjendur og lengra komna

Laugardagur 31.janúar
kl. 09:40 - 10.15
SAMU


 


FEBRÚAR

Þriðjudagur 3. febrúar
kl. 17.30 - 19:00
NÁMSKEIÐ, "Hugur Byrjandans" (4/4), námskeið í zen iðkun fyrir byrjendur og lengra komna

Laugardagur 7. febrúar
kl. 09.15
RÆÐA, Helga Kimyo

Laugardagur 14. febrúar
Kaffi eftir zazen
kl. 10:15
LESHRINGUR, Mikhael Zentetsu
"HJARTASÚTRAN" 

Laugardagur 21. febrúar
Kaffi eftir zazen
kl. 10:15
LESHRINGUR, Mikhael Zentetsu
"HJARTASÚTRAN" 

Laugardagur 28. febrúar
kl. 09:40 - 10:15
SAMU

 


MARS

Þriðjudagur 3. mars
kl. 19:15
ZAZEN LEIÐSÖGN, Ástvaldur Zenki

Laugardagur 7. mars
kl. 09:15
RÆÐA, Ástvaldur Zenki

Laugardagur 14. mars
Kaffi eftir zazen.
kl. 10:15
LESHRINGUR, Mikhael Zentetsu
"HJARTASÚTRAN"

Laugardagur 21. mars
Kaffi eftir zazen.
kl. 10:15
LESHRINGUR, Mikhael Zentetsu
"HJARTASÚTRAN"

Laugardagur 28. mars
kl. 09:15
RÆÐA, Gyða Myoji
 
VORFRÍ FRÁ OG MEÐ MÁNUDEGI 30. MARS til MIÐVIKUDAGS 8. APRÍL.

 


APRÍL

Miðvikudagur 8. apríl
kl. 07:20
ZAZEN

Laugardagur 11. apríl
AFMÆLI BÚDDA
Kyrjað við stúpuna í Kópavogi eftir zazen, svo höldum við veislu (staðsetning tilkynnt síðar).

Laugardagur 18. apríl
Kaffi eftir zazen
kl. 10:15
LESHRINGUR, Mikhael Zentetsu
"HJARTASÚTRAN"

Fimmtudagur 23. apríl
FRÍ

Laugardagur 25. apríl
kl. 09:40 - 10:15
SAMU

Mánudagur 27. apríl
kl. 19:30
AÐALFUNDUR

 


MAÍ

Föstudagur 1.maí
FRÍ

Mánudagur 4.maí
kl. 19.15
ZAZEN LEIÐSÖGN, Ástvaldur Zenki

Mánudagur 11. maí
kl. 17.30
Oryoki leiðsögn

Miðvikudagur 13. maí
kl. 19:30
VOR SESSHIN NÁTTHAGA 2015 undir leiðsögn Jakusho Kwong-roshi.
Sesshin er haldið í Skálholti. Áætlað er að þátttakendur mæti í húsakynni Nátthaga að Grensávegi  8, kl. 15:30 og komi í Skálholt um fimmleytið þar sem allir hjálpast að við að koma öllu fyrir sem þarf til á sem hagkvæmastan hátt. Léttur kvöldverður er framreiddur áður en sesshin hefst. Sesshin stendur yfir til sunnudags 17. maí kl. 15:00

Mánudagur 18. maí
FRÍ

þriðjudagur 19. maí
FRÍ

Miðvikudagur 20.maí
kl. 07:20
ZAZEN

Mánudagur 25. maí
FRÍ

Laugardagur 30. maí
kl. 08:00
ZAZEN


JÚNÍ

Dagskrá í júní samkvæmt daglegri zazen iðkun. 

Sumarfrí frá og með 27. júní til 10. ágúst

Fyrirlestur þar sem Dr. Eben Alexanders talar um nær-dauða-reynslu sína

 

Hér getið þið séð Dr. Eben Alexanders tala um næ-dauða-reynslu sína:

 


Viðtal við Ástvald Zenki Traustason

 

Hér er viðtal við Ástvald Zenki Traustason sem birtist í Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag. Viðtalið fjallar um Zen hugleiðslu og hvernig hún getur hjálpað okkur í lífinu. Zen iðkun er sterk og heiðarleg leið til að læra að þekkja sjálfan sig betur og lifa meira í andartakinu. Nýtt námskeið hefst 13. janúar, sjá nánar á www.zen.is.

 

https://dl.dropboxusercontent.com/u/23327169/Zen.%C3%81stvaldur.Mbl.2.1.2015.pdf  


Tímamót

 


Tímamót


Nú hækkar sól á lofti og enn á ný stöndum við á tímamótum, kveðjum gamla árið og heilsum hinu nýja. Við hver áramót er hefð fyrir því að horfa yfir farinn veg og læra af því sem vel gekk á liðnu ári og ekki síður af því sem miður fór.
Hið sama minnti hinn forni fræðari Pýþagóras lærisveina sína að gera á hverju kvöldi; að staldra við, líta yfir daginn og setja sér verkefni næturinnar. Við áramótin skjóta gjarnan upp í hugann stóru spurningarnar sem eru frjó heimspekinnar: Hver er ég? Hvað vil ég? Hvað þrái ég? Hverjar eru skyldur mínar? Þá er einnig hefð fyrir því að setja sér markmið til að stefna að á komandi ári.
   Í indverskri stjörnuspeki er reynt að svara þessum grundvallarspurningum fyrir hvern og einn og eins fyrir líðandi stund. Með dýrahringnum er vegferð sólarinnar skipt í tólf áfanga og hver áfangi tengist á einn eða annan hátt fjórum grunnspurningum sem varða skylduna, velgengnina, óskirnar og tenginguna inn á við (dharma, artha, kama og moskha). Þegar rýnt er í merkingu líðandi stundar er fyrst og fremst litið á það svæði dýrahringsins sem er að koma upp í austri og merkið sem þar er á himni skiptir meginmáli. Í vestrænni stjörnuspeki skiptir merkið sem sólin er í hins vegar meginmáli í tengslum við fæðingarkort.
   Í indverskri stjörnuspeki er lesið úr merkingu líðandi tímabila með því að skoða sérstaklega stjörnumerkið á því svæði dýrahringsins þar sem sólin er á vorjafndægri. Vorpunktur á himni hreyfist rólega eina hringferð um dýrahringinn á 25.772 árum. Ef þessari hringferð sólarinnar um dýrahringinn er skipt í tólf áfanga verður hver áfangi rétt um 2160 ár. Talan 216 var til forna tákn um hinn fullkomna hring. Við þekkjum töluna í Opinberunarbók Jóhannesar sem töluna 666; talan sex í þriðja veldi (6x6x6) er 216. Talan sex er tala fullkominnar sköpunar og er margfeldi af 2 og 3 (móður og föður). Talan 2160 var því notuð sem viðmið þó hún væri 12 árum umfram raungildið. Vorpunkturinn hreyfist um eina gráður á um 72 árum og um eina mínútu á 1,2 ári.
Menn hafa lengi deilt um hvernig best sé að skilgreina mörkin á milli stjörnumerkjanna og þá hvenær vorpunkturinn flyst á milli þeirra. Skoða má það í sögulegu samhengi en heimildir eru býsna ósamdóma, í sumum þeirra er upphaf Vatnsberaaldarinnar talið vera 1447 e.Kr en í öðrum 3621 e.Kr. Þetta ósamræmi er ekki sérlega hjálplegt.
   Ég tel nokkrar leiðir gerlegar til að skilgreina viðmiðunarpunkt sem skiptir dýrahringnum niður í 12 merki eða 360 gráður. Fyrir nokkrum árum fékk ég Þorstein Sæmundsson stjörnufræðing til að reikna nákvæmlega út upphaf Vatnsberaaldarinnar út frá nokkrum viðmiðunarpunktum. Einfaldasta leiðin er sú að miða við núverandi skilgreiningar á stjörnumerkjunum og þá fer vorpunkturinn í Vatnsbera u.þ.b. 2500 e.Kr.
   Við getum skilgreint svartholið í miðju Vetrarbrautarinnar sem núllpunktinn. Það er einn möguleiki og kannski sá rökréttasti. Ör Bogmannsins á fastahimninum bendir einmitt á þennan stað. Ef þessi punktur er notaður þá byrjar Vatnsberaöldin um 2226 e.Kr.
Fyrir þá sem skoða næturhimininn er í raun augljóst að láta Vetrabrautina skipta dýrahringnum í tvo hluta. Skurðpunktur Vetrarbratar og Dýrahrings verður þá annars vegar milli Nauts og Tvíbura og hins vegar milli Sporðdreka og Bogmanns. Með nútíma aðferðum er hægt að reikna nákvæmlega miðlínu Vetrabrautarinnar og skilgreina þannig tvo viðmiðunarpunkta. Ef þessi aðferð er viðhöfð þá var vorpunkturinn á mörkum Fiska og Vatnsberans árið 1998. Sennilegt er að þetta séu hin réttu tímamót og ef svo er erum við nú við upphaf Vatnsberaaldarinnar. Þetta er sá punktur dýrahringsins sem er næstur suðurpól Vetrabrautarinnar, og má kalla þennan punkt hafsbotninn og andstæðu fjallstoppinn.
Guðspekisinninn og stjörnuspekingurinn Dane Rudhyar segir í bók sinni An Astrological Mandala frá táknum sem byggðust á efni sem hafði verið miðlað um sérhverja gráðu dýrahringsins. Eftirfarandi texti og táknmynd tengist fyrstu gráðu Vatnsberans: Gamalt múrsteinshús sem notað var til trúboðs í Kaliforníu. Textann má útleggja á þennan veg: Áhrif allra göfugra verka vara lengur en líf einstaklingana. Dane lítur svo á að þessi táknmynd sé upphaf á ferli þar sem hugsjónum er gefið form. Af því má leiða að það sé verkefni okkar allra næstu 53 árin (búin 19 ár af 72 sem tilheyra fyrstu gráðu Vatnsberans) að leggja grunn að þeim hugsjónum og dyggðum sem við viljum rækta.
   Næstu 4320 ár eru tímabil Vatnsbera og Steingeitar en Satúrnus stjórnar báðum merkjunum. Hann er guð jarðar og Vatnsberinn er hús frumefnisins lofts en Steingeitin tilheyrir jörðinni. Satúrnus var hjá Rómverjum til forna guð kynslóðanna, auðlegðar, landbúnaðar og endurnýjunar. Þá var hann tengdur tímanum eins og gríski bróðir hans Chronus. Hjá Rómverjum var hann líka miðsvetrarguðinn Janus sem var tvíhöfða og horfði annað höfuðið yfir liðið ár og hitt fram á það næsta. Satúrnus er tengdur myrkrinu, tímanum og takmörkunum en líka því sem af því leiðir; grósku og vexti.
   Satúrnus ræður dimmasta tímabili ársins og svo dimmustu stóröldunum. Þetta er tímabil andlegrar vanþekkingar (Kali Yuga) sem Indverjar tala um þegar erfiðast er fyrir andlega nema að ná árangri. En aftur á móti er þetta tímabil andlegs vaxtar og leggur grunninn að nýrri andlegri opnun í þroskun einstaklingsins og mannkynsins.
   Fyrir um 6600 árum gekk vorpunkturinn inn í Nautsmerkið. Fyrir um 4500 árum gekk hann í Hrútsmerkið og fyrir um 2160 árum gekk hann í Fiskamerkið. Talið er að höfuðguð hvers tímabils hafi verið látinn taka upp táknmynd merkisins við vorpunktinn. Fiskurinn var aðaltákn kristninnar í upphafi og var svo fram eftir fyrstu öldum hennar. Fiskimennirnir lærisveinar Krists fengu nýtt hlutverk; þeir áttu að veiða menn í stað fiska. En nú er runninn upp tími nýrrar táknmyndar sem varðar leið inn á við í djúp hugans.
   Tímamót aldanna tveggja eru oft skilgreind sem tímabil mikilla breytinga og þá jafnframt tímabil nýrrar andlegrar vakningar. Fyrir rúmum 2000 árum komu fram á sviðið nýir andlegir straumar við botn Miðjarðarhafsins sem kalla má gnóstík og það sem síðar varð neoplatónismi. Í suðupotti margra menningarstrauma varð til það sem þá var kölluð Theosophia eða viskuskólinn sem leiddi sálina inn í hið tæra guðlega ástand. Kristnin var hluti þessarar nýju vakningar en eins og allar hreyfingar átti hún erfitt með að halda vöku sinni og er hún ekki lengur sá visku skóli sem áður var.
   Móðir félagsins, frú Helena Petrovna Blavatsky, talaði um nýja öld og nýjan þroskaáfanga í þróun mannkynsins. Blavatsky sjálf og óbeint í gegnum félagið opnaði dyr fyrir nýja andlega menningarstrauma frá austurlöndum inn í vestræna menningu. Fyrir áhrif félagsins hafa orðið til fjöldinn allur af nýjum félögum sem hafa þróað starfið enn frekar og margt er þegar orðið almenningseign. Þessi hreyfing hefur verið kölluð nýaldarhreyfingin. Þótt Lífspekifélagið sé lítið hefur það sennilega haft meiri áhrif á innflæði andlegra strauma inn í vestræna menninu en nokkurt annað félag.
En hvað táknar Vatnsberinn? Hann er guðinn í ánni; Tiberinus í ánni Tíber hjá Rómverjum, Hapi í ánni Níl hjá Eygyptum og þá sennilega ásinn Þjór í Þjórsá á Íslandi. Kannski er Vatnsberinn tilvísun til Sushumna sem er möndullinn í innri gerð mannsins og lykilinn að endurlausn hans. Hann er það sem esóterískt jóga fjallar um. Hugsanlega er Vatnsberinn einmitt þetta ljós í myrkrinu. Ljósið sem birtist þegar myrkrið er mest. Vatnsberinn heldur á keri sem er uppspretta árinnar. Þannig er lyndin og brunnurinn líka tengt þessu merki.
   Við höfum séð á undanfarinni öld skjótari framfarir í veraldlegum vísindum en nokkurn tíma áður. Vísindin byggjast á mælingum og skilgreiningum sem er einmitt grunneðli Satúrnusar. Það má vera að við lifum á tímum andlegrar vanþekkingar en þessir tímar eru líka tímar andlegrar vakningar. Dimmasti punkturinn er nú liðinn. Við vitum að ísöld leið undir lok fyrir um 13000 árum og nær öll byggð ból á jörðinni fóru undir 200 metra af sjó. Þá lauk síðustu gullöld andans (Satya Yuga) og nýr hringur í þróun mannsins hófst.
   Nú er aftur 13000 ár til næsta hápunkts gullaldar andans og nú er tími til að sá fræjunum sem þá munu ljóma sem dýrðleg tré. Þetta er fljótt að líða og kannski bara 108 líf þangað til...
Njótið ferðarinnar en munið ráð Pýþagórasar: Staldrið við, lærið af liðnum tímum og ákvarðið vaxtarverkefni komandi tíma.
Gleðilegt nýtt ár – 19. ár Vatnsberans!!

 

Haraldur Erlendsson


Gleðilegt ár 2015

 

Be always with people who inspire you; surround yourself with people who lift you up. Do not let your resolutions and positive thinking be poisoned by bad company. Even if you cannot find good company to inspire you, you can find it in meditation. The best company you can have is the joy of meditation.

 

Yogananda


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband