28.12.2014 | 12:51
If you can not find the truth ...
There are thousands upon thousands of students
who have practised meditation and obtained its fruits.
Do not doubt its possibilities because of the simplicity of the method.
If you can not find the truth right where you are,
where else do you expect to find it?
Dogen
25.12.2014 | 20:47
The burden
Two monks were returning to the monastery in the evening. It had rained and there were puddles of water on the road sides. At one place a beautiful young woman was standing unable to walk accross because of a puddle of water. The elder of the two monks went up to a her lifted her and left her on the other side of the road, and continued his way to the monastery.
In the evening the younger monk came to the elder monk and said, Sir, as monks, we cannot touch a woman ?
The elder monk answered yes, brother.
Then the younger monk asks again, but then Sir, how is that you lifted that woman on the roadside ?
The elder monk smiled at him and told him I left her on the other side of the road, but you are still carrying her.
19.12.2014 | 10:00
Meditation may physically alter regions of the brain
14.12.2014 | 14:08
Vitundin hefur vitund um sjálfa sig
Með orðum verður því eigi lýst sem þú ert. En það sem ríkir í
hljóðum huga hlýtur að kallast kyrrð. Einhver óskilgreinanlegur óendanleiki, kyrr og óbifanlegur, gæddur eðli lífs og vitundar, kemur í ljós þegar innihald hugans, hughræringarnar, þokar um set.
Sú kyrrð er vitundin sjálf, ódulin, ótrufluð, þú sjálfur, ekki það sem gerist, heldur það sem er. Vitundin hefur vitund um sjálfa sig.
Nánar: Vitund þín í því ástandi sem kallast hljóður hugur er
bakgrunnur alls sem gerist alla tíð bæði nú og áður. Munurinn er einungis sá að áður hafði það sem gerist þig á valdi sínu. Nú finnurðu þig vera það sem er og verður var við sjálfan þig virða fyrir þér það sem gerist.
Sigvaldi Hjálmarsson - Stefnumót við alheiminn.
Bókin fæst hjá bóksölu Lífspekifélagsins. Sjá: http://www.lifspekifelagid.is/bokathonusta/default.htm
8.12.2014 | 13:24
Grein úr tímaritinu Ganglera sem var að koma út
Ef þið viljið gerast áskrifendur að Ganglera þá getið þið sent póst á netfangið: timaritidgangleri@gmail.com
Hugur, uppljómun og innri gerð mannsins
Í þessum spjalli langar mig aðallega að spjalla um þrjú hugtök sem margoft koma fyrir þegar lesið er eitthvað um andleg málefni. Fyrst ber að nefna hið margumrædda fyrirbæri uppljómun eða hugljómun eða hvaða orð við viljum nota yfir það. Tala svo örlítið um huga mannsins og svo að lokum mun ég minnast aðeins á innri gerð mannsins, þ.e. orkustöðvarnar og þess háttar. Ég er alls enginn sérfræðingur um þessi efni en áhugamaður og þetta spjall er í raun allt ein spurning og fátt um svör því ég hef þau ekki. Þetta eru í raun spurningar sem ég hef verið að velta fyrir mér allt frá því ég fór að hafa áhuga á andlegum málefnum. Ég hef leitað nokkuð víða og fengið þeim mun fleiri svör og mismunandi því víðar sem ég leita. Ef þú t.d. varpar spurningunum: Er uppljómun til? út á hið andlega markaðstorg þá færðu mörg mismunandi svör úr öllum áttum og allri segjast hafa rétt fyrir sér. Eins er gaman að arka út á hið andlega markaðstorg of spyrja: Er hægt að ná tökum á huganum? Þar færðu einnig mörg svör en mesta fjörið er sennilega þegar þú ferð að spyrja spurninga um innri gerð mannsins, þ.e. um orkustöðvarnar og orkurásir og þvíumlíkt. Þá er nú oftast framboðið meira en eftirspurnin og það verður að segjast að margt er þar arfavitlaust að mínu mati en getur samt verið rétt þó mér finnist það vitlaust. Ég nefni þessar þrjár spurningar hér því þær eru megin uppistaðan í þessu spjalli. Spurningarnar eru: Er uppljómun til og er hún varanleg? Er hægt að ná fullkomnum tökum á huganum og að síðustu hvernig kemur innri gerð mannsins inn í þetta allt saman? Svo komið þið inn í að vild með athugasemdir.
Fljótlega eftir að ég fór að lesa mér til um andleg mál þá sá ég að þar er víða misræmi í frásögnum og menn ekki sammála um allt, t.d. heyrir maður það oft og þá sérstaklega frá yogum að þú getir náð fullkominni stjórn á huganum, að hann eigi að vera þér jafn þjáll og hönd þín. Sigvaldi Hjálmarsson margsagði þetta og fullyrt oft að hægt væri að ná algjörlega kyrrum huga, sem hann kallaði reyndar hljóðan huga. Hann segir í Stefnumóti við alheiminn:
Keppikeflið er hugsanafrítt ástand ætíð þegar ekki þarf að nota hugsunarhæfileikann, en sé hann hafður í notkun á hann að vera jafn-þjáll og höndin hjá miklum hagleiksmanni. Svo segir hann í Fræðslubálki, bréfi 5: Þú átt semsagt að geta ráðið hvort þú hugsar, myndar hugsanir, eða ekki. Og þegar þú gerir það ekki, tekur bara eftir, engar hugsanir koma, hugurinn alkyrr (eins og sagt er), kemur þú sjálfur í ljós einsog þú ert í rauninni.
Þá segir í Yogasútrum Patanjalis:
Yoga er það að ná valdi á myndun hugsana og hugmynda í huga sér og þá verður maðurinn var við sjálfan sig eins og hann er.
Krishnamurti talaði nú oft um algjörlega kyrran huga eða heila og lýsir því t.d. vel í dagbókarfærslum sínum hvernig slíkur hugur eða heili starfa eða starfar ekki. Ramana Maharshi talar einnig oft um algjörlega hljóðan huga.
Lítum á dæmi úr bók Jack Kornfields og Guðjóns Bergmann. Kornfield segir: En jafnvel þó við vinnum að því að endurmennta hugann mun okkur aldrei takast það fullkomlega. Hugurinn virðist hafa sjálfstæðan vilja, sama hversu heitt við óskum þess að geta sagt honum fyrir.
Guðjón tekur í sama streng : Allir sem hafa reynt að ná einhverri stjórn á hugsunum sínum komast mjög fljótt að sömu niðurstöðu. Það er ekki hægt að stjórna þeim öllum! Enginn getur stjórnað öllum sínum hugsunum ...
Svo virðist sem þetta viðhorf þeira Kornfields og Guðjóns falli ekki alveg að því sem Sigvaldi og félagar segja að ofan. Sumir virðast vera á því að það sé eðli hugans að vera á sífelldu flandri og að þú getir aldrei náð fullkominni stjórn á honum, mesta lagi komist á bak við hann og verið honum þannig óháður en hugsanaflöktið verði alltaf til staðar að einhverju leyti. Við skulum ekki dvelja lengur við hugann, við gerum nóg af því.
Uppljómun er annað atriði sem menn eru ekki sammála um hvort er raunveruleg fyrirbæri og hvort það er til eitthvert ástand þar sem maðurinn öðlast endanlega uppljómun sem er þá komin til að vera. Þarna virðist aftur vera mikill munur á því sem margir búddistar segja og aftur á móti því sem yogar segja. Margir vilja meina að ekkert sé til sem heiti endanleg uppljómun, uppljómun komi aðeins sem glampi og vari í einhverja smá stund, geti jafnvel varað í einhverja daga, og hverfi svo. Sumir segja að engin endastöð sé til og því sé uppljómun aldrei endanleg. En vissapana-hugleiðslukennarinn frægi Jack Kornfield segir þetta um uppljómun í bók sinni Um hjartað liggur leið:
Uppljómun er til. Það er hægt að vakna. Ótakmarkað frelsi og gleði, að vera eitt með Guðdóminum, að vakna til eilífðar náðar þessi reynsla er algengari en þig grunar og hún er ekki langt undan. En þar með er ekki öll sagan sögð, því hún endist ekki. Það koma þær stundir að við öðlumst djúpan skilning og vöknum til vitundar um raunverulegt eðli heimsins, en þær líða hjá.
Lítum á aðrar tilvitnun í Kornfield:
,,Vera má að þú hafir lesið frásagnir í hefðbundnum stíl, þar sem greinir frá uppljómuðum vitringum í Asíu eða algjörlega flekklausum dýrlingum og dulspeking- um á Vesturlöndum, en þessar fyrirmyndarsögur gera verið vafasamar. Satt að segja er ekki til neitt sem kalla mætti uppljómað ævikvöld þegar vöknun hjartans er annars vegar. Þannig gerast hlutirnir bara ekki.
Svo að lokum segir hann: Fyrir svo að segja alla iðkendur skiptast á tímabil vöknunar og opnunar annars vegar og tímabil ótta og herpings hins vegar. Í kjölfar tímabils sem einkennist af djúpstæðum friði og nýfundinni ást fylgir oft tímabil missis, lokunar, ótta og nýuppgötvaðra svika og svo tekur aftur tími jafnlyndis eða gleði. Á dularfullan hátt er hjartað eins og blóm sem opnast og lokast. Þannig er okkar eðli.
En hvað segir Sigvaldi Hjálmarsson um uppljómun eða hugljómun:
Maðurinn stefnir að hinu stórkostlega ævintýri: að upplifa al-veruna og alheiminn ánþess nokkurn skugga beri á. Allt og allir þokast í sömu átt, en förinni má flýta með sérstakri iðkun og lífsháttum: yoga, hinni mistísku leið.
Fyrsta stig felst í að glíma við hugann, þú þarf að gera verið hrein athygli, algerlega ótruflanleg athygli sem kallast ótruflanleiki. Þegar þeim árangri er náð kemur iðkun sem kalla má á íslensku að vera hljóður hugur sem er svo hástemmd kyrrð að jafnvel eigin hugsanir trufla ekki.
Þegar því stigi er náð, að geta verið hljóður hugur, hefst annað stigið sem gjarnan má kalla máttar-yoga eða máttar-iðkun.
Máttar-æfingar eru allt-annars eðlis en þær æfingar sem miða að því að gera verið hrein athygli og hljóður hugur ...
Vanalega slær mystískri upplifun niður sem leiftri, og reynslan sýnir að þeir verða næmari fyrir henni sem gera verið hljóður hugur. Samt kemur hún og fer einsog leiftur. Máttar-iðkun á hinsvegar að koma þeirri breytingu á með manninum sem gerir hinu mystíska eða guðlega vitundarástandi mögulegt að standa við, halda áfram, verða viðvarandi. Sú breyting kallast ummyndun og er mesta undrið á hinni andlegu leið, leiðinni til hugljómunar.
Það er nú nokkur munur á því sem þessir tveir segja og eru þeir ekki þeir einu sem eru ósammála um þetta. En hvernig stendur á að menn eru svona ósammála um þessa blessaða uppljómun? Getur verið að þeir sem ekki hafa náð endanlegari uppljómun segja að hún sé ekki til og það gæti þá eins átt við með hugann, þ.e. að þeir sem hafa ekki náð fullkominni stjórn á hugann segja að það sé ekki hægt að ná fullkominni stjórn á huganum? Hvað er það sem skilur að? Margir búddistar tala einungis um uppljómun eina og sér en yogar skipta oft uppljómun eða samadhi í tvennt, þ.e. sambikalpa samadhi og nirvikalpa samadhi. Nirvikalpa samadhi er í raun hin endanlega uppljómun og þá er maðurinn kominn í endanlega guðsvitund, þetta sem Sigvaldi talaði um að ofan, dropinn hefur sameinast hafinu. Sambikalpa samadhi mætti kannski kallast undanfari nirvikalpa samadhi og það sé í raun hinir mystísku glampar sem Sigvaldi talar um. Sjáum hvað Mouni Sadhu hefur að segja um uppljómun eða samadhi í bók um Ramana Maharshi, þetta er reyndar tekið úr Ganglera frá árinu 1968:
Það eru til tvö stig af Samadhi [uppljómun]. Annað þeirra er tímabundið [mystískir glampar?], en hitt varanlegt [Uppljómun]. Tímabundið Samadhi er eins konar andlegt alsæluástand sem kemur skyndilega yfir mann [mystískir glampar sem koma og hverfa eins og leiftur], sjálfkrafa eða sem árangur vísvitandi viðleitni, en varir aðeins um stundasakir. Og eftir að það er horfið kemst maður á ný í eðlilegt vitundarástand sem ber einungis dauf merki eða endurspeglun Samadhi-reynslunnar líkt og sólargeislar endurspeglast í krukku fullri af vatni.
Þegar maðurinn er kominn í þetta ástand [Nirvikalpa samadhi, varanlega uppljómun] skiptir engu máli lengur hvort hann talar eða þegir, hreyfir sig eða sefur eða framkvæmir einhverjar sýnilegar athvafnir, vegna þess að vitund hans sígur aldrei niður í það sem við venjulegt fólk teljum normalt ástand.
Ég spyr aftur, hvers vegna greinir menn svona á um hvort uppljómun geti verið varanleg eða ekki? Margir búddistar að ég held, fyrir utan tantrahefðina í tíbeskum búddisma (Tantra er reyndar að finna í öðrum búddískum hefðum en ekki í eins miklu mæli og í þeirri tíbesku að ég held), vinna lítið sem ekkert í innri gerðinni og gæti það skipt máli þegar kemur að uppljómun spyr ég? Ég veit það ekki, ég er að spyrja að þessu öllu. Samkvæmt því sem Sigvaldi segir þá verður þú að ná fyrst tökum á huganum og stunda hugrækt að kappi áður en æðri æfingar koma til, sumir halda því reyndar fram að þess þurfi ekki, þ.e. að þú getir farið strax að stunda æðri yoga-æfingar þó svo hugurinn sé ekki taminn til fulls. Zen búddistar t.d. eru einungis í því að hugleiða, þ.e. fyrsta stigið sem Sigvaldi nefndi, og huga ekkert að innri gerð mannsins í sinni iðkun en þeir kalla uppljómun satori sem kemur oft leiftursnöggt og hverfur jafnvel jafn skjótt (Mystískir glampar?) og sumir zen-bíddistar, eins og t.d. Suzuki-roshi, segja að þegar þú hefur náð satori þá er það ekkert sérstakt, en er það þá í raun hinn endanlega uppljómun eða er það bara hljóður hugur? Annar zen meistari, Dogen, talaði um að uppljómun væri það að vera í innilegu sambandi við alla skapaða hluti.
Mikið af þeim upplýsingum er varða innri gerð mannsins eru fengnar að láni frá Sigvalda Hjálmarssyni og Geir Ágústssyni og ef ég hef farið með einhverja vitleysu hér þá bið ég ykkur um að leiðrétta mig því ég er bara áhugamaður um efnið en ekki sérfræðingur, langt því frá.
Mikið af upplýsingu er til um þetta efni og þúsundir bóka hafa verið skrifaðar um innri gerð mannsins og jafnvel er einhver sérfræðingur hér í salnum í þessum fræðum. Með innri gerð mannsins á ég aðallega við orkustöðvarnar en samt þónokkuð meira sem kemur í ljós á eftir.
Einnig er mjög vinsælt í dag að vinna með þessa innri gerð og getur maður farið víða á námskeið til þess, m.a. bjóða margir upp á nám í kundalini yoga en ekki eru kannski allir sammála um gæði alls þess náms sem boðið er upp á. Þú getur farið í orkustöðvargreiningu og komið lagi á þessar stöðvar með því eða svo er sagt. Þú getur maulað mat sem er í sama lit og orkustöðvarnar t.d. er neðsta orkustöðin gul og þá myndir þú borða gula papriku til að koma henni í jafnvægi á hana o.s.frv. Þú getur dansað og komið lagi á stöðvarnar og o.fl. o.fl.
En þegar maður les eitthvað um kundalini þá virðist engin vera sammála um neitt hvað viðkemur þessari orku eða hvað þá um orkustöðvarnar. Sumir segja að maður eigi að láta þessa orku algjörlega eiga sig og alls ekki að reyna að vekja hana úr dái sínu ef hún er þá í dái. Aðrir segja það sé í lagi að vekja þessa orku upp en fara gætilega í það. Menn hafa orðið verulega veikir á því að vekja kundalini upp, t.d. eins og Gopi Krishna sem varð mjög veikur eftir að kundalini vaknaði hjá honum og var hann mörg ár að jafna sig en að lokum náði hann sér eftir að hafa komið jafnvægi á innri gerðina og lifði í fullkomnu jafnvægi, samadhi, til dauðadags. Einnig þjáðist Krishnamurti mikið í mörg ár án þess að einhver skýring hafi verið á þessum kvölum hans. Gæti það hafa tengst kundalini og innri gerðinni? Kundalini á ekki að ryðjast fram eins og hún gerði hjá Gopi Krishna og mörgum öðrum. Sigvaldi sagði:
Þar er ekki um að ræða að einn kraftur ryðjist áfram eins og snjóflóð, brjóti og bramli og breyti. Ef vel er að farið mun slíkt ekki gerast í kúndalíni-yoga. Þar er litla gáran notuð beint og hún er eins og sólskinið. Það verður.
Þannig að maður getur lesið sig rænulausan um kundalini og orkustöðvarnar en ég held að öruggasta leiðin til þessa að komast að því hvað er satt í þessu öllu saman er að leggja út á brautina sjálfur og prófa. En við erum mjög mismunandi og þetta hentar sumum en öðrum alls ekki, trúlega hentar kundalini yoga betur þeim sem eru næmir fyrir innri gerðinni og finna að eitthvað er þarna til staðar, annars veit ég það ekki. Það allavega auðveldar iðkunina. En við skulum að gamni kíkja á mynd af þessa innri gerð. Myndin er tekin úr gamalli Ganglera- grein eftir Geir Ágústsson:
Á myndinni sjást m.a. orkustöðvarnar sjö sem margir kannast við og hafa heyrt um. Muladhara er neðst við mænurót en þar er sagt að kundalini liggi í dvala sínum. Önnur orkustöðin heitir á sanskrít svatisthana og er hún staðsett rétt neðan við nafla eða til móts við lífbeinið. Manipuraka er næst og er hún til móts við nafla eða rétt fyrir ofna hann. Anahata kemur svo og er staðsett á milli geirvartanna eða á milli herðablaða neðan til. Vissuddhi er í hálsinum, í barkakýli og ajna er á milli augnabrúna. Sahasrara er svo síðust af þessum sjö og sumir segja hana vera sem þúsund blaða lótus á hvirflinum en aðrir vilja meina að sahasrara sé í raun allt það sem er fyrir ofna höfuðið. Orkustöðvarnar sjö eru allar í sushumna sem er aðalorkurás líkamans og svo eru aðrar tvær orkurásir ida, sem liggur vinstra megin við sushumna, og pingala sem liggur hægra megin. Ég ætla nú ekki að tína allt til sem sést á myndinni en það sem er einna merkilegast við þessa mynd er að hér sjáum við stöðvarnar níu sem eru fyrir ofan höfuðið en þær eru sjaldséðar í bókum. Einnig sést þarna Chit-Kala hjólið sem er við ennið og miðpunktur þess er anja og hjartalótusinn (hridaya chakra) sem er ekki það sama og anahata eða hjartastöðin. Eins og sést á myndinn þá nær innri gerð mannsins þó nokkuð langt upp fyrir ofan höfuðið, þ.e. það sem samsvarar lengdinni frá muladhara upp í ajna og sumir segja að innri gerðin nái mun lengra en það eða allt að að tveimur metrum upp yfir höfuðið.
Víkjum þá tali okkar aftur að hugljómun/uppljómun en eins og fram hefur komið þá telja sumir að hún sé til og hægt sé að öðlast viðvarandi uppljómun en aðrir telja það tálsýn. Er þá eitthvað til sem heitir endanleg uppljómun?
Rifjum upp orð Jack Kornfields: Uppljómun er til. Það er hægt að vakna. Ótakmarkað frelsi og gleði, að vera eitt með Guðdóminum, að vakna til eilífðar náðar þessi reynsla er algengari en þig grunar og hún er ekki langt undan. En þar með er ekki öll sagan sögð, því hún endist ekki. Það koma þær stundir að við öðlumst djúpan skilning og vöknum til vitundar um raunverulegt eðli heimsins, en þær líða hjá.
Kornfield vill meina að uppljómun/hugljómun sé til en hún sé aldrei komin til að vera, staldrar einungis stutt við og kveður svo. Sigvaldi vill einnig meina að hugljómun sé til og að hún geti orðið viðvarandi. En hvers vegna verður þessi mystíska reynsla/hugljómun ekki varanleg, eins og Kornfield heldur fram, er einhver ástæða fyrir því að hún staldrar svo stutt við? Er Kornfield kannski bara að tala um fyrsta stig uppljómunar, sambikalpa samadhi, eða það sem Sigvaldi kallaði mystíska glampa. En hvers vegna staldrar uppljómunin svo stutt við, af hverju varir hún ekki? Kornfield segir að það sé í raun eðli uppljómunarinnar, þ.e. að koma og fara, hún verði aldrei varanleg. Sigvaldi segir segir hins vegar að uppljómun vari ekki því að innri gerð mannsins sé ekki rétt og það verði að lagfæra hana með ákveðnum yogaæfingum. Einungis þegar það er búið þá getur uppljómunin orðið varanleg.
Nú stundar Jack Kornfield vippasana-hugleiðslu og er þar aðallega fengist við hugann en engar æfingar með innri gerðina, held ég, einhver leiðréttir mig ef ég er að segja einhverja vitleysu. Gæti það verið orsökin fyrir því að uppljómun hans staldrar ekki við? Ég veit ekki.
Ljúkum umræðunni um uppljómun á þessu orðum Sigvalda Hjálmarssonar:
Þannig skiptist þroskabraut mannsins samkvæmt mystískum fræðum í þrennt: hugræna þjálfun, máttariðkun og guðlegt stig. Árangurinn kvað vera viðvarandi hugljómun, æðsta stig mystískrar reynslu sem varir.
Eflaust erum við sem hér erum ekki sammála um þessa hluti og þannig á það líka að vera. Engin hefur rétt né rangt fyrir sér í raun. Ég held að það sé því við hæfi eftir þetta spjall að enda á þessum orðum:
Þeir sem hafa komist upp fjallið og sé yfir dalinn þurfa ekki að rífast um hvernig útsýnið er, það er hlutskipti okkar sem eru enn niðri í dalnum.
Takk fyrir
Leifur H. Leifsson
8.12.2014 | 13:14
8. des.
When I was 5 years old, my mother always told me that happiness was the key to life. When I went to school, they asked me what I wanted to be when I grew up. I wrote down happy. They told me I didnt understand the assignment, and I told them they didnt understand life.
John Lennon
4.12.2014 | 11:00
Hávamál Indíalands (Bhagavad Gita) - Áttunda kviða
ÁTTUNDA KVIÐA
Arjúna mælti:
- Hvað er hinn Eilífi? Hver er þessi innri maður? Og
hvað er athöfn, Krishna? Hvað er og átt við, þá er sagt
er í öllum skepnum og í öllum guðum?
- Og hvernig getur nokkur, er lifir í jarðneskum líkama,
verið í öllum fórnum? Og hvernig geta þeir, Krishna! er
lúta frumvitund sinni, þekkt þig, er þeir hverfa héðan?
Þá mælti hinn dýrðlegi drottinn:
- Hinn Eilífi er hið æðsta og hið óumbreytanlega. Innri
maður er og nefndur líkamsbúinn. Fórnin, sem er uppruni
allra jarðneskra vera, heitir athöfn.
- Þekking á skepnum er þekking á eðlisþáttum mínum, er
líða undir lok. Þekking á guðum er þekking á lífgandi
orku, og þekking á fórnum er þekking á mér, Arjúna! í
þessum líkama.
- Sá maður hlýtur að sameinast mér, er hugsar aðeins um
mig á andlátsstund sinni, er hann skilur við líkamann.
Enginn vafi getur á því leikið.
- En hver sá maður, er hugsar um einhverja aðra veru, er
hann skilur við líkamann, hverfur til hennar, Arjúna! og
mótast af henni.
- Fyrir því skaltu hugsa aðeins um mig og berjast. Bein
þú huga þínum og mannviti til mín. Og þá kemur þú til
mín. Enginn vafi getur á því leikið.
- Og hver sá maður, er iðkar sífellt yoga og lætur hugann
ekki hvarfla frá hinum æðsta, hinum guðdómlega anda,
hann hverfur til hans, Arjúna!
9.-10. Svo er hinn vitri, stjórnandinn, er verið hefir til síðan í
árdögum. Hann er minni hverri frumögn. Hann er sá, er
öllu við heldur. Enginn getur gert sér í hugarlund,
hvernig hann er. Hann ljómar líkt og sólin fyrir handan
myrkrin. Beini menn huga til hans, þá hverfa þeir til
hans, hins guðdómlega, svo framarlega sem þeir eru
einhuga á andlátsstund sinni, hafa fölskvalausa elsku til
að bera og hafa stöðvað lífsöndunina milli augnabrúna
sinna.
- Vil ég nú skýra þér frá því í fám orðum, hvert er takmark
það, er talið er ævarandi meðal hinna Veda-fróðu.
Takmarki þessu ná þeir, er hafa vald á sjálfum sér, eru
lausir við ástríður og þrá að lifa hreinlífi.
- Þeir loka öllum hliðum
,byrgja hugann í hjarta sér,
halda svo lífsöndun fastri í höfði sér og sökkva sér niður
í íhugun.
- Þeir hverfa svo að hinu æðsta takmarki, er þeir segja
orðið aúm, einnar samstöfu heiti hins Eilífa, og hugsa
ríkt um mig, er þeir skilja við líkama sinn.
- Þeim yoga veitir auðvelt að komast til mín, Arjúna! er
hugsar sífellt um mig og engan annan og hefir öðlast
hugarrósemi.
- Slík andleg mikilmenni fæðast ekki aftur inn í þennan
fallvalta þrautaheim, er þau hafa komið til mín. Þau hafa
þá náð æðstu fullkomnun.
- Heimarnir allir, allt frá Brahma-heimum, gera ýmist að
koma eða hverfa, Arjúna! En hver sá maður, Arjúna! er
hefir komið til mín, fæðist ekki framar.
- Þeir menn vita deili á degi og nóttu, er vita, að Brahmadagur
einn er þúsund heimstímabil
,og að nóttin er
viðlíka löng, áður lýkur.
- Hið skynhæfa rís í dögun upp frá hinu óskynhæfa. En
það leysist aftur upp við komu nætur og hverfur inn í
það, sem kallað er hið óskynhæfa.
- Allur þessi verufjöldi, Arjúna! er kemur hvað eftir annað,
leysist upp við komu nætur og fær þar engu um
ráðið. En hann kemur fram að nýju, er tekur að elda
aftur.
- Óskynhæfri tilveru er öðruvísi farið en hinni, sem er
skynhæf. Hin óskynhæfa er eilíf og líður ekki undir lok,
þótt allir hlutir leysist upp og hverfi.
- Hin óskynhæfa tilvera er og kölluð ævarandi. Hún er og
nefnd hið æðsta takmark. Þeir menn, er hafa náð því,
hverfa ekki aftur. Hún er og hinn æðsti dvalarstaður
minn.
- Mönnum, sem elska heitt og einvörðungu hinn æðsta
anda, sem allar verur lifa í og er í öllum hlutum, er
vinnandi vegur, Arjúna! að komast til hans.
- Ég skal nú skýra þér frá því, Arjúna! hvenær yogar
verða að deyja til þess að hverfa ekki aftur, og hvenær
þeir verða að deyja, er eiga afturkvæmt.
- Ef þeir menn, er þekkja hinn Eilífa, andast, meðan eldar
brenna, ljós lýsir, dagur ljómar, máni vex og sólin er á
sex mánaða norðurleið, þá hverfa þeir til hins Eilífa.
- En yogi sá kemur aftur, er andast og hverfur inn í
mánablikið, meðan reykur rýkur, nótt drottnar, máni
minnkar og sól er á sex mánaða suðurleið.
- Ljós og myrkur eru sagðar eilífar leiðir þessarar veraldar.
Maður sá, er kemur ekki aftur, hefir lagt inn á
ljósveg. En hinn, er leggur inn á myrkurleiðir, kemur
aftur.
- Þeir, er þekkja báðar þessar leiðir, Arjúna! fara aldrei
villir vegar. Fyrir því skaltu, Arjúna! iðka yoga öllum
stundum.
- Yoginn, er veit allt þetta, getur öðlast meira en það, sem
mönnum er heitið fyrir það að leggja stund á lestur
Veda-bóka, gera góðverk, færa fórnir, gefa ölmusugjafir
og lifa meinlætalífi. Hann fer til hins æðsta og upprunalega
dvalarstaðar.
Þannig hljóðar áttunda kviða óðsins helga, Hávamála, kvæðanna
um hinn EILÍFA, yoga-ritsins, samræðu þeirra, drottins Krishna og
Arjúna. Og hún heitir:
EILÍFÐAR-YOGA
Hávamál Indíalands Bhagavad Gita
Hávamál Indíalands fæst verslunum Eymundsson og hjá Lífspekifélaginu, www.lifspekifelagid.is
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2014 | 08:37
Harvard Unveils MRI Study Proving Meditation Literally Rebuilds The Brainâs Gray Matter In 8 Weeks
Harvard Unveils MRI Study Proving Meditation Literally Rebuilds The Brains Gray Matter In 8 Weeks
Test subjects taking part in an 8-week program of mindfulness meditation showed results that astonished even the most experienced neuroscientists at Harvard University. The study was led by a Harvard-affiliated team of researchers based at Massachusetts General Hospital, and the teams MRI scans documented for the very first time in medical history how meditation produced massive changes inside the brains gray matter. Although the practice of meditation is associated with a sense of peacefulness and physical relaxation, practitioners have long claimed that meditation also provides cognitive and psychological benefits that persist throughout the day, says study senior author Sara Lazar of the MGH Psychiatric Neuroimaging Research Program and a Harvard Medical School instructor in psychology. This study demonstrates that changes in brain structure may underlie some of these reported improvements and that people are not just feeling better because they are spending time relaxing.
Sue McGreevey of MGH writes: Previous studies from Lazars group and others found structural differences between the brains of experienced meditation practitioners and individuals with no history of meditation, observing thickening of the cerebral cortex in areas associated with attention and emotional integration. But those investigations could not document that those differences were actually produced by meditation. Until now, that is. The participants spent an average of 27 minutes per day practicing mindfulness exercises, and this is all it took to stimulate a major increase in gray matter density in the hippocampus, the part of the brain associated with self-awareness, compassion, and introspection. McGreevey adds: Participant-reported reductions in stress also were correlated with decreased gray-matter density in the amygdala, which is known to play an important role in anxiety and stress. None of these changes were seen in the control group, indicating that they had not resulted merely from the passage of time.
It is fascinating to see the brains plasticity and that, by practicing meditation, we can play an active role in changing the brain and can increase our well-being and quality of life, says Britta Hölzel, first author of the paper and a research fellow at MGH and Giessen University in Germany. You can read more about the remarkable study by visiting Harvard.edu. If this is up your alley then you need to read this: Listen As Sam Harris Explains How To Tame Your Mind (No Religion Required)
25.11.2014 | 10:48
Lífspekifélagið um helgina
Dagskrá í húsi Lífspekifélagsins(Guðspekifélagsins) að Ingólfsstræti 22
Reglulegir fundir frá byrjun okt til loka apríl.
Fundartími á föstudögum er kl. 20. Á laugardögum er aðaláhersla á hugleiðingu (íhugun) og fræðslu tengdri henni eða annað efni. Hugleiðing hefst kl 15:30. Siðan er kaffikl 16 ogfræðsla eftir það.
Föstudagur 28. nóv. kl 20:00
Halldór Haraldsson. Hugleiðingar um tímann.
Ath. breyting frá áður auglýstri dagskrá.
Laugardaga 28. nóv. kl 15:30
Anna Valdimarsdótttir,sálfræðingur leiðir íhugun og segir frá nýútkominni bók sinn Hugrækt og hamingja og les úr henni.
Um bloggið
OM - ॐ
Færsluflokkar
Tenglar
Hugleiðslunámskeið á Íslandi
- Námskeið hjá Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni
- Sahaja yoga-hugleiðsla
- Hugleiðslunámskeið hjá Brahma Kumaris
- Sri Chinmoy miðstöðin á Íslandi
- Andartak.is - Kundalini jóga og hugleiðsla
- Zen-hugleiðslunámskeið
- Dharma.is - Innsæishugleiðsla
- Innhverf íhugun
Frí hugleiðslunámskeið á Netinu
- Free Meditations
- Námskeið í búddískri hugleiðslu
- Námskeið í Kundalini yoga
- Free online meditation course
- Free Sahaja meditation course online
Hugleiðsla
Hér er að finna tengla þar sem þú getur lært og kynnt þér hugleiðslu.
- Listin að hugleiða
- Zen á Íslandi - Zen-hugleiðsla
- Kristbjörg
- Kundalini-hugleiðsla
- Hugleiðslu- og friðarmiðstöðin
- SGI-búddismi á Íslandi
- Sri Chinmoy miðstöðin á Íslandi
- Skandinavíski yoga- og hugleiðsluskólinn
- Leiðbeiningar fyrir Zen-hugleiðslu
- Sahaja Yoga
- Brahma Kumaris - Raja Yoga hugleiðsla
- Jack Kornfield - Insight Meditation (vipassana)
- Centerpointe
- Ljósmiðlun
- Traditional Yoga and Meditation of the Himalayan Masters
- Innhverf íhugun
- Vipassana meditation course
Helg forn rit
- Veda-ritin
- Bhagavad Gita
- Bhagavad Gita
- Upanishads
- Upanishads
- Shiva sutra
- Brahma Sutra
- Yogasútrur Patanjalis
- Rig Veda
- Sama Veda
- Hatha Yoga Pradipika
- Shiva Samhita
- Gheranda Samhita
- Sacred Texts (Helg indversk rit)
- Biblían
- Dhammapada
- Kóraninn
Tímarit um andleg málefni
- Tímaritið Knowledge of reality
- Bindu - Tímarit Skandinavíska yoga- og hugleiðsluskólans
- Tímaritið Gangleri
- Primary Point - Zen
- Efnisskrá Ganglera frá 1926
- The Sufism Journal online
- The Theosophist
Bækur á íslensku um andleg málefni
- Starfsrækt (Karma yoga) - Swami Vivekananda
- Allar bækur Gunnars Dal
- Bækur eftir Alice Baily
- Martínus - Bækur á íslensku
- Launviska Vedabóka
Bækur um andleg málefni
- The Unknown Life of Jesus Christ
- Bók um Kriya Yoga
- Sjálfsævisaga Jóga
- Whispers from Eternity - Paramahansa Yogananda
- The Path - Swami Kriyananda
- God is for Everyone - Inspired by Yogananda
- My time with the master - Paramahansa Prajnanananda
- The Universe Within - Paramahansa Prajnanananda
- The art and science of Raja Yoga - Swami Kriyananda
- Complete work of Swami Vivekananda
- Gopi Krishna - Bækur, greinar og viðtöl
- Bókin Zen and the brain
- Zen Mind, Beginner´s Mind - Shunryu Suzuki-roshi
- Manual of Zen Buddhisim - D. T. Suzuki
- Stripping the Gurus
- Rödd þagnarinnar á ensku
- Eckhart Tolle - Stillness Speaks - Hljóðbók
- Bækur eftir Ramana Maharshi
- Saundarya Lahiri
- The Meditative Mind - Krishnamurti
- Krishnamurti´s Notebook
- Meditations - Krishnamurti
- The Serpent Power
- C. W. Leadbeater - Chakras: A Monograph
- Kundalini Yoga - Swami Sivananda
- Fríar bækur með Krishnamurti
- The Tibetan Book of Dead
- Karma Yoga - Swami Vivekananda
- Leiðarljós (Light on the Path) á ensku
- The Power of Now - Hljóðbók
- Hljóðbókin Breath sweeps mind eftir Jakusho Kwong-roshi
- Opening the Hand of Thought Bók eftir Kosho Uchiyama
- To shine one corner of the world : moments with Shunryu Suzuki : stories of a Zen master told by his students
- How to Cook your Life - Dogen
- The Art of Just Sitting: Essential Writings on the Zen Practice of Shikantaza
- On Zen Practice
- On Having No Head
Greinar um andleg málefni
- Greinasafn Lífspekifélagsins/Guðspekifélagsins
- Greinar eftir Sigvalda Hjálmarsson
- Greinar og rannskóknir tengdar kundalini
- Krishnamurti - Greinar, viðtöl og tilvitnanir
- Hugleiðingar um kenningar Sigvalda Hjálmarssonar - I. Hluti
- Hugleiðingar um kenningar Sigvalda Hjálmarssonar - II. hluti
- Greinar úr zen-tímaritinu Primary Point
- Greinar eftir dr. Erlend Haraldsson
- Greinasafn Jóns L. Arnalds
- Yður er í dag frelsari fæddur? - Njörður P. Njarðvík
- Yoga og geðrækt
- Leiðin til hugljómunar - Sigvaldi Hjálmarsson
- Geinar úr tímaritinu Quest
Ýmsir tenglar andlegs eðlis - Íslenskir
- Kærleikssetrið
- Jógakennarafélag Íslands
- Lífspekifélagið/Guðspekifélagið
- AA
- CoDa
- Viska og gleði
- Kærleikssamtökin
- Björg Einarsdóttir
- Trú.is
- LAUSNIN - Baráttusamtök gegn meðvirkni
- Dharma.is - Innsæishugleiðsla
- Dulheimar - Andleg þróunarheimspeki
- Vetrarbrautin.com
- Listi yfir skráð trú- og lífskoðunarfélög á Íslandi
Ýmsir tenglar andlegs eðlis - Erlendir
- DharmaTalk með Thich Nhat Hanh
- Agni Yoga
- Meditation of the Himalayan Masters
- Vedanta Society
- Vedanta.com
- tantra-kundalini.com
- Ayurveda-próf - Hvaða líkamsgerð ertu?
- Prajnanamission
- Big Mind
- Vedanta Spiritual Library
- Great Integral Awakening
- Sounds True
- Wildmind - Buddhist Meditation
- Institute for Consciousness Research
- Biology of Kundalini
- Kundalini Research Network
- Hindu Tantrik Tradition
- Inner Self
- Spirit Voyage
- Dalai Lama kyrjar möntru úr Rig Veda
- Ýmislegt um Ramakrishna
- The Five Tibetan Rite
- Message from masters
- Bæklingur um sanskrítarframburð
- The Theosophical Society - International Headquarters
- Sri Vidya
- Vedanet
- Eastern tradition - Eastern Tradition Research Archive
- Lífspekifélög/Guðspekifélög um allan heim
Ýmsir andans menn
- Sigvaldi Hjálmarsson
- J. Krishnamurti
- Ken Wilber
- Gopi Krishna
- Swami Sivananda
- Osho
- Deepak Chopra
- Swami Vivekananda
- Sri Ramakrishna
- Yogi Hari
- Eckhart Tolle
- Yogi Shanti Desai
- Yogi Amrit Desai
- Shunryu Suzuki roshi
- Ramana Maharishi
- Sri Aurobindo
- Paramahansa Yogananda
- Paramahamsa Hariharananda
- Jakusho Kwong-roshi
- Jack Kornfield
- Swami Rama
- Grétar Fells
- D. T. Suzuki
- Dalai Lama
- Thich Nhat Hanh
- Eckhart Tolle
- Helena Blavatsky
- Paramahamsa Prajnanananda
- Rupert Spira
- Bodhidharma
- Om Swami
Lífspeki/Guðspeki
- Lífspekifélag Íslands
- Lífspekifélagið í USA
- Helena Blavatzky
- Facebook-síða Lífspekifélags Íslands
- Aðalstöðvar Lífspekifélagsins á Indlandi
Kriya Yoga
Hér er að finna tengla tengda Kriya Yoga
- Kriya Yoga Institute
- Paramahansa Hariharananda
- Paramahamsa Prajnanananda
- Bækur um Kriya Yoga eftir Hariharananda og Prajnananda
- Self-Realization Fellowship
- Ananda: The Teaching of Paramahansa Yogananda
- Cyberspace Ashram for Kriya Yoga
- Bókin Sjálfsævisaga jóga (Autobiography of a Yogi)
- Kriya Yoga - Swami Shankarananda Giri
- Kriya Yoga - Yogi Dhirananda
- Bók um Kriya Yoga á Netinu
- Kriya Yoga in the Lahiri Mahasaya family tradition
- Babaji´s Kriya Yoga
- Myndbönd um kriya yoga
- Prajnanamission
- Babaji Kriya Hatha Yoga - 18 Kriya Postures
- Umsókn - Kennslustundir hjá SRF
Hatha Yoga (Líkamsstöður - Teygjur)
- Yogavin
- Jóga hjá Kristbjörgu
- Jóga Stúdíó
- Jógakennarafélag Íslands
- Jóga Jörð
- Jen Reviews
- Sólir
- Yogashala
- Jógakennarar og jógastöðvar á Íslandi
Zen
- Zen á Íslandi
- Sonoma Mountain Zen Center
- Bókin Zen Mind, Beginners Mind eftir Shunryu Suzuki-roshi
- Bókin No Beginning. No End eftir Jakusho Kwong-roshi kennara Zen á Íslandi
- Hljóðbókin Breath Sweeps Mind eftir Jakusho Kwong-roshi
- The Teaching of Shunryu Suzuki-roshi
- San Francisco Zen Center
- Myndbönd með Suzuki-roshi
- Plum Village - Thich Nhat Hanh
- Zen of Recovery - Mel Ash
- Zen Road
- Zen sútrur
- Kwan Um School of Zen
- Daily Zen
- Big Mind
- Zen Peacemakers
- Suzuki-roshi 50
- Hljóðbókin Zen mind, beginner´s mind
- The Suzuki Roshi Audio Archive
- Opening the Hand of Thought Bók eftir Kosho Uchiyama
- To shine one corner of the world : moments with Shunryu Suzuki : stories of a Zen master told by his students
- How to Cook your Life - Dogen
- The Art of Just Sitting: Essential Writings on the Zen Practice of Shikantaza
- On Zen Practice
Bloggvinir
-
thesecret
-
gudjonbergmann
-
gyda
-
heringi
-
gudmundurhelgi
-
braxi
-
fruheimsmeistari
-
vilborg-e
-
steina
-
ludvik
-
maggadora
-
baenamaer
-
perlaheim
-
vestfirdir
-
vglilja
-
palmig
-
einherji
-
andreaolafs
-
flinston
-
birnarebekka
-
tilfinningar
-
dizadj
-
gylforce
-
esa-emorea777
-
estersv
-
eydis
-
gudjonelias
-
heildraent-joga
-
heildraent-lif
-
guru
-
tru
-
fun
-
jensgud
-
josira
-
katrinsnaeholm
-
kari-hardarson
-
kiza
-
kjarvald
-
kristinnhalldor
-
kiddirokk
-
krilli
-
laufherm
-
mariaannakristjansdottir
-
manisvans
-
nanna
-
aronsky
-
huldumenn
-
ragjo
-
rose
-
straitjacket
-
vinur
-
nimbus
-
slembra
-
svanurg
-
toshiki
-
hanoi
-
thorhallurheimisson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 96312
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar