Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Nokkrar andlegar bækur á íslensku

 

Hér er listi yfir nokkrar andlegar bækur á íslensku: 

http://hugleiding.com/Nokkrarandlb.ppsx 


Lífspekifélagið um helgina

 

Föstudagur 12. feb. kl 20:00  heldur
Björn Erlendsson erindi: Bruno Gröning, æfi og starf.

 

13. feb. laugardagur kl 15:30 
Þórgunna Þórarinsdóttir leiðir hugleiðingu og eftir kaffi er sýnd mynd um lækninn Bruno Gröning og sagt frá starfi hans.

 

www.lifspekifelagid.is 

 


Áherslan er á iðkunina

 

Mikilvægast í iðkuninni er stellingin og öndunin. Við leggjum ekki mikið upp úr djúpum skilningi á búddisma. Sem heimspeki er búddisminn ekkert slor, en zen hefur engan áhuga á heimspekilegum skilningi. Áherslan er á iðkunina. Við verðum að gera okkur ljóst hvers vegna það er svona þýðingarmikið að fylgjast með öndunni og sitja í réttri stellingu. Og í stað þess að hafa djúpan skilning á kenningunni þurfum við að treysta henni, ekki síst því, að upprunalegt eðli okkar sé búdda-eðli. Á þessu trausi hvílir iðkunin.

 

Shunryu Suzuki-roshi - Zen hugur, hugur byrjandans

 

Zen á Íslandi 


Mundilfari - Nýtt fréttablað Lífspekifélagsins

 

Hér getið þið nálgast nýtt eintak af fréttabalði Lífspekifélagsins:

http://lifspekifelagid.is/Mundillfari/MUNDILFARI_jan_16.pdf


Ný heimildarmynd um Yogananda í Lífspekifélaginu um helgina

 

Föstudagur 5. feb. kl 20:00 kynnir Bjarni Sveinbjörnsson nýja kvikmynd um ævi og starf Paramahansa Yogananda.

 Sjá stiklu hér:

 

Laugardaginn 6. feb kl 15:30 mun Bjarni Sveinbjörnsson leiðir hugleiðingu og ræðir um ævi Yogananda.

 

www.lifspekifelagid.is 

 


Lífspekifélagið um helgina

 


Föstudaginn 29. jan.kl 20:00 heldur Pétur Gissurarson erindi: Vitund í alheimi. Er lífið útgeislun alheimsvitunar, vitundar Guðs?


30. jan. kl 15:30 Bjarnheiður Bjarnadóttir leiðir hugleiðingu síðan fjallar Pétur Gissurarson um bylgjur, tíðnisvið og öreindahraðalinn í CERN


Dagskrá Lífspekifélagsins um helgina

 

22. febrúar, kl. 20. Birgir Bjarnason heldur erindi um fljúgandi furðuhluti og geimverur.

 

23. febrúar, kl. 15:30. Fjallað verður um Sigvalda Hjálmarsson.

 

 

 

 

 

 


Hugleiðslunámskeið

 

Hugleiðslunámskeiðið Andinn Sópar Hugann er ætlað jafnt byrjendum sem og iðkendum og meðlimum í Zen á Íslandi - Nátthaga. Námskeiðið mun byggja alfarið á hljóðbókinni Breath Sweeps Mind eftir Jakusho Kwong Roshi, kennara okkar í Zen á Íslandi, en við munum lesa saman valda kafla úr hljóðbókinni í íslenskri þýðingu. Nálgun Kwong Roshi er mjög ítarleg og gaumgæfileg og snýr að öllum hliðum Zen iðkunar. Við höfum ekki áður lagst í eins djúpa skoðun á kennslu kennara okkar og því hvetjum við alla félaga og áhugasama til þess að nýta sér þetta tækifæri.

Leiðbeinendur á námskeiðinu verða þau Ástvaldur Zenki og Gyða Myoji, sem bæði hafa hlotið prestsvígslu hjá Jakusho Kwong-roshi, kennara Zen á Íslandi – Nátthaga, auk þess sem Ástvaldur Zenki gegnir stöðu aðstoðarkennara í Nátthaga.
Námskeiðið hefst mánudaginn 25. janúar 2016, kl. 17:30 - 19:00 og fer fram á mánudagskvöldum í janúar og febrúar, alls fimm skipti, í aðsetri Zen á Íslandi á Grensásvegi 8,  4.hæð. Námskeiðið er öllum opið, óháð trúar- og lífsskoðunum.

Þátttökugjald er 15.000kr. en námskeiðið er ókeypis fyrir þá sem greiða árgjald í Nátthaga. Innifalið í þátttökugjaldi er dagleg iðkun á meðan á námskeiðinu stendur.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á zen@zen.is.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1755205790198
  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 96760

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband