If there are no thoughts there is no thinker ...

 

Is there any relationship between the thinker and his thought, or is there only thought and not a thinker? If there are no thoughts there is no thinker. When you have thoughts, is there a thinker? Perceiving the impermanency of thoughts, thought itself creates the thinker who gives himself permanency; so thought creates the thinker; then the thinker establishes himself as a permanent entity apart from thoughts which are always in a state of flux. So, thought creates the thinker and not the other way about. The thinker does not create thought, for if there are no thoughts, there is no thinker. The thinker separates himself from his parent and tries to establish a relationship, a relationship between the so-called permanent, which is the thinker created by thought, and the impermanent or transient, which is thought. So, both are really transient.Pursue a thought completely to its very end. Think it out fully, feel it out and discover for yourself what happens. You will find that there is no thinker at all. For, when thought ceases, the thinker is not. We think there are two states, as the thinker and the thought. These two states are fictitious, unreal. There is only thought, and the bundle of thought creates the 'me', the thinker.

 

Krishnamurti - What Are You Doing with Your Life?


Að fara á salernið er Zen: Leshringur laugardaginn 8. mars

 

„Sem betur fer eða því miður þurfum við að fara á salernið, illþefjandi salernið, jafnvel þó ykkur líki það ekki. Mér þykir það leitt, en ég held að við þurfum að fara á salernið svo lengi sem við lifum.“ 

 Shunryu Suzuki-roshi

Laugardaginn 5. mars nk. kl. 10:00 - 11:00 mun Andri Fannar Ottósson leiða leshring um kafla úr bókinni not always so eftir Shunryu Suzuki-roshi. Andri hefur þýtt kafla úr bókinni yfir á íslensku og mun lesa þýðingu sína fyrir okkur, og síðan verður opnað fyrir umræður um textann. Kaflinn sem um ræðir í þetta skiptið ber heitið ” The Zen of Going to the Rest Room ” í frumtextanum.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.


Lífspekifélagið um helgina - Hugleiðsla fyrir byrjendur o.fl.

 

9. mars. Föstudagur kl 20:30 Hermann Bjarnason, hugmyndasögufræðingur:
Táknfræði Barböru. Fjallað er um tákn í skáldsögunni
Barböru eftir Jörgen Frantz Jacobsen.

 

10. mars. Laugardagur kl.15:30 Einar Már Guðmundsson rithöfundur talar um það sem honum er hugleikið.

 

Spjall um hugrækt kl. 14 og hugleiðsla fyrir byrjendur kl. 14:30


Ég get þagað á mörgum tungumálum!

 

Ekkert land þekki ég þarsem þögnin er meira í hávegum höfð en Indland.

Danskur maður sem áratugum saman hefur dvalist í Himalaya sagði þegar ég spurði hann hvað hann helst vildi kenna:

-Þér stendur til boða að koma til mín og þegja með mér ef þú vilt. Ég get þagað á mörgum tungumálum!

 

Sigvaldi Hjálmarsson - Haf í dropa


The mind in meditation

 

May I suggest that we talk this evening about the mind in meditation, which is a most complex and subtle problem. If one does not know what meditation is, true meditation, I think one misses everything in life. It is like being in a prison where you see only the wall opposite you and know only the limitation, the pain, the sorrow and all the petty little things that make up your life of confinement. So it seems to me that meditation is a very direct and intimate problem for each one of us, because it requires the approach of a mind in meditation to understand the whole movement of life.

 

 

J. Krishnamurti - The Collected Works Vol XI New Delhi 8th Public Talk 4th March 1959


Zen fyrirlestur í kvöld kl. 20:00

 

Fimmtudaginn 1.mars nk. kl.20:00 mun Helga Kimyo Jóakimsdóttir halda fyrirlestur um Zen sem ber heitið “Að þekkja óendanleikann”. Efni fyrirlestrarins er ritgerð Dogen, stofnanda Soto Zen skólans í Japan, sem ber heitið “Bendowa” eða Um einlæga iðkun á Veginum, og útskýringar Zen meistarans Kosho Uchiyama á þessum lykiltexta Dogens.

Helga Kimyo gegnir stöðu forstöðumanns trúfélagsins Zen á Íslandi – Nátthaga og hefur hlotið nafnbótina Hoshi (Dharma Holder) frá Jakusho Kwong-roshi, kennara Zen á Íslandi. Hún hefur verið nemandi Kwong-roshi frá árinu 1986.

Húsið opnar kl.19:15 en dagskrá kvöldsins hefst með 30 mínútna zazen kl.19:30. Allir eru hvattir til þess að taka þátt í hugleiðslunni, en það er einnig hægt að koma rétt fyrir kl.20:00 til þess að hlýða á fyrirlesturinn.

 

www.zen.is


Lífspekifélagið um helgina

 

2. mars. Föstudagur kl 20:30 Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur:
„Líf hverrar frumu er leyndur dómur“

3. mars. Laugardagur kl 15:30 Hrafnhildur Geirsdóttir: Hvað segja stjörnurnar um þig?Hrafnhildur er stjörnuspekingur

 

Bókaþjónustan er opin á fimmtudögum kl. 16.30 -18.30

 

 

HUGSANAFRELSI

Lífspekifélagið hefur nú breitt úr sér um allan hinn siðaða heim, og fylgismenn allra trúarbragða hafa gengið í það, án þess að hverfa frá hinum sérstöku trúarsetningum sínum. Sökum þess er talið æskilegt að brýndur sé fyrir mönnum sá sannleikur, að engin kennisetning, engin skoðun, hver sem heldur henni fram, er með nokkrum hætti bindandi fyrir nokkurn félagsmann. Þeir geta aðhyllst hana eða hafnað henni alveg eftir vild. Samúð með stefnuskrá félagsins eða tilgangi er eina skilyrðið fyrir inngöngu í það. Enginn fræðari eða rithöfundur hefur nokkurn rétt til að binda félagsmenn við skoðanir er hann heldur fram. Allir hafa jafnan rétt til að fylgja hvaða fræðara eða kenningum sem þeim sýnist, en þeir hafa engan rétt til að heimta að aðrir fylgi hinu sama og þeir. Kjörgengi og kosningaréttur manna í félaginu verður hvorugt ógilt sökum einhverra skoðana er þeir hafa eða stefnu er þeir fylgja. Skoðanir eða trúaratriði gera hvorki að ræna menn réttindum né láta þeim aukin réttindi í té. Aðalstjórn Lífspekifélagsins brýnir alvarlega fyrir félagsmönnum að halda fast við þessi grundvallaratriði félagsins, verja þau og breyta samkvæmt þeim - brýnir fyrir þeim að nota óhræddir réttinn og frelsið til að hugsa og láta hugsanir í ljós innan þeirra takmarka er kurteisi og tillit til annarra heimta.

http://lifspekifelagid.is/ 

 


Zen master Thich Nhat Hanh says a spiritual revolution is needed if we are going to confront the environmental challenges that face us

 

Zen master Thich Nhat Hanh explains why mindfulness and a spiritual revolution rather than economics is needed to protect nature and limit climate change.

Lesið hér: http://www.guardian.co.uk/sustainable-business/zen-thich-naht-hanh-buddhidm-business-values


Sálfræðimeðferð við kvíða og hugleiðslusetur í Lífspekifélaginu um helgina

24. feb. föstudagur kl 20:30:

Þorsteinn Yraola með erindi er hann nefnir Sálfræðimeðferð við kvíða. Þorsteinn Yraola er cand. psych. nemi í sálfræði sem vinnur að lokaverkefni um HAM og mindfulness meðferðum við kvíðaröskunum.

 25. feb. laugardagur kl 15:30:

Cand.Psych. Þorgerður Guðmundsdóttir: Hugleiðslusetur
Þorgerður fjallar um hugleiðslusetrið Gaia House.

Spjall um hugrækt kl. 14 og hugleiðing fyrir byrjendur kl 14:30

www.lifspekifelagid.is

 


One book in particular stayed with Steve Jobs his entire life ...

 

“One book in particular stayed with Steve Jobs his entire life, and was the only book Jobs had downloaded on his iPad 2: [Paramhansa Yogananda’s] ‘Autobiography of a Yogi,’ the guide to meditation and spirituality that he had first read as a teenager, then re-read in India and had read once a year ever since.”

http://www.huffingtonpost.com/2011/10/21/the-steve-jobs-reading-list-the-books_n_1024021.html


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 96355

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband