Jakusho Kwong Roshi í Safnahúsinu 18. maí kl. 17:30 - 19:00

 

File:Jakusho Kwong.JPG

 

 

,,Þegar blekkingar hugans hverfa inn í myrkrið stígur annars konar nærvera fram. Við hverfum aftur til þagnarinnar. Þessi þögn er eins og íslenskt landslag, þrungin óendanlegri fegurð, víðáttu og friðsæld. Þannig er hugurinn í hugleiðslu, mikilfenglegur og víðáttumikill, án upphafs og endis."


Jakusho Kwong Roshi



Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur mun beina spurningum að Zen meistaranum Jakusho Kwong-roshi, kennara Nátthaga-Zen á Íslandi og Nyoze Kwong, Zen presti og framkvæmdastjóra Sonoma Mountain Zen Center. Áheyrendum í sal gefst einnig tækifæri á að bera upp spurningar.

Roshi hefur verið kennari Nátthaga-Zen á Íslandi í 30 ár.
Þetta er í fjórða sinn sem samræðufundur sem þessi er haldinn.

Samræðurnar fara fram á ensku.

Verð kr. 2.500.-

 

www.zen.is 


Ráðstefna um hið andlega Ísland - Mysteries of the North in Iceland

Ráðstefna um hið andlega Ísland verður haldin 24-29. ágúst að Hellnum.

Mysteries of the North in Iceland.

Í lok ráðstefnunnar verður 6 daga ferðalag um Vestfirði þar sem áherslan er á að upplifa andlegan veruleika landsins.

Þeir sem vilja skrá sig geri það sem fyrst þvi ekki mörg pláss laus.

Byrjið á því að skrá ykkur hér: http://www.esotericquest.org/

https://www.facebook.com/groups/1616184552036501/


Sahaja yoga á Íslandi - Kynningarfundur 2. maí

 

 

  • Mánudagsfundur 2. maí 2016 kl. 20:00 – 21:00.  Dalbraut 27. Sahaja Yoga fyrir þá sem hafa komið að minnsta kosti einu sinni á kynningarfund.
  • Kynningarfundur. 2. maí 2016 kl. 20:00 – 22:00. Dalbraut, 104 Reykjavík, Iceland. Kynningarfundur á Sahaja jóga
  • Mánudagsfundur. 9. maí 2016 kl. 20:00 – 21:00. Dalbraut 27. Sahaja Yoga fyrir þá sem hafa komið að minnsta kosti einu sinni á kynningarfund.

 

https://sahajayoga.is/


Hækur

 

 

Blóðlituð skýin

blítt mála flöt hafsins.

Fjöllin horfa á.

 

 

Regnið féll í nótt

lyktin kemur upp um

kyrrðina í dag.

 

 

Fyrsti snjórinn féll

ég skrifaði til þín ljóð

sem þú aldrei last.

 

  

Trén standa þögul

vatnið sofnar með mánann

í fangi sínu.

 

 

Dagurinn fjarar út,

kvöldið leysir landfestar.

Nóttin fellur að.

 

 

Ekki flögra burt

leyfðu mér að finna það

sem fæst ekki snert.

 

 

Fuglinn syngur lágt,

dögunin breiðir blessun

yfir nýjan dag.

 

 

Máninn er fullur.

Ég sit hér einn með öllu,

allt verður svo ég.

 

 

Nóttin sækir að,

myrkrið leggst hæglátlega

yfir látinn dag.

 

 

Fjallið og skýið

faðmast þétt í hlíðinni.

Loks fer svo fjallið.


Lífspekifélagið um helgina

 

 

22. apríl föstudagur kl 20:00 Haraldur Erlendsson fjallar um skáldsögu sína og efni tengt henni.

 

23. apríl laugardagur kl 15:30
Árni Reynisson: Vegur viskunnar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband