Gullfjötrar eru engu síður fjötrar en járnfjötrar

Til er æðra ástand en gáfur góðra tilhneiginga. Óskin um lausn. Minnstu þess, að takmark alls yoga er frelsi sálarinnar, og leiðir hvert um sig að sama árangri. Menn geta náð þangað með starfi, sem Búddha komst með íhugun og Kristur með bæn. Búddha var gnana- og Kristur bhakti-yogi, en báðir náðu sama takmarkinu.

Hér vandast málið. Lausn táknar algert frelsi, – frelsi úr fjötrum góðs, eigi síður en ills.

Gullfjötrar eru engu síður fjötrar en járnfjötrar. Það er flís í fingri mínum, og ég dreg hana út með annarri flís, og þegar ég hefi náð henni, kasta ég báðum. Mér er gagnslaust að geyma síðari flísina, því að báðar eru í raun og veru flísar.

Með þessum hætti á að uppræta illar hneigðir með góðum, og vondan vana á að sigra með nýrri öldu góðs vana, unz vondi vaninn hverfur eða er undirokaður og haldið í skefjum í afkimum hugans.

En því næst á að sigra góðu tilhneiginguna. Hinn háði á að verða óháður. Starfaðu, en láttu ekki starfið eða hugsunina hafa sterk áhrif á hugann. Láttu bárurnar rísa á haffleti hugans.

Láttu vöðva og heila vinna stórvirki, en láttu þá ekki hafa sterk áhrif á hugann. Hvernig má þetta verða? Vér sjáum, að öll störf, sem vér verðum háðir, skilja eftir varanleg áhrif.

Ég mæti hundruðum manna á einum degi, en ég mæti einum, sem ég elska, og þegar ég er lagstur til hvíldar að kveldi, reyni ég að rifja upp fyrir mér öll andlitin, en man einungis eftir því andliti, er ég elska og sá aðeins í svip. Öll hin hafa gleymst. Ást mín á manninum fékk meira á hug minn en öll hin andlitin. Áhrifin voru öll eins í líffræðilegum skilningi.

Öll andlitin, sem fyrir mig bar, vörpuðu mynd sinni á nethimnuna, og heilinn tók á móti myndinni, en áhrifin á hugann voru samt sem áður ólík. En þessi sérstaki maður, sem ég sá ef til vill aðeins bregða fyrir, hafði meiri áhrif á mig en hin andlitin, af því að þau voru ekki tengd við neitt í hug mér. Flest af þeim voru mér ef til vill gersamlega ókunn, andlit, sem ég hafði aldrei áður hugsað um, en þetta eina andlit, sem ég sá aðeins bregða fyrir, átti sérstök ítök í hug mér.

Ég hafði séð manninn ef til vill fyrir mér árum saman, vissi margt um hann, og þetta eina atvik átti hundruð skildra atvika í hug mér, og þau vöknuðu öll. Áhrif þau, sem andlitið hafði á hugskotssjónir mínar, voru margfalt meiri en áhrif allra hinna, og þegar svo er ástatt, markast jafnskjótt djúp spor í hugann.

 Vertu þess vegna óháður. Láttu hlutina vinna. Láttu heilann starfa, starfa látlaust, en láttu ekki starfið stjórna huganum. Starfaðu eins og ríki þitt væri ekki af þessum heimi, eins og þú værir aðkomumaður. Starfaðu látlaust, en fjötraðu ekki sjálfan þig. Fjötrar eru ægilegir. Þessi veröld er ekki heimkynni vort. Hún er aðeins áfangastaður á leið vorri, einn af mörgum.

Swami Vivekananda – Starfsrækt

http://rafhladan.is/bitstream/handle/10802/1879/Svami-Vivekananda-Starfsraekt.pdf?sequence=1  


You and I as individuals will have to transform ourselves

The individual is obviously of the greatest significance in society because it is only the individual who is capable of creative activity, not the mass, and I shall explain presently what I mean by that word creative. If you see this fact, then you will also realize that what you are in yourself is of the highest importance. Your capacity to think, to function with wholeness, with an integration in which there is no self-contradiction, this has an enormous significance. We see that if there is to be any real change in the world, and there must be a real change, then you and I as individuals will have to transform ourselves. Unless there is a radical change in each one of us, life becomes an endless imitation, ultimately leading to boredom, frustration, and hopelessness

Krishnamurti - The Collected Works


Meditation is not something different from daily life

 

Meditation is not something different from daily life; do not go off into the corner of a room and meditate for ten minutes, then come out of it and be a butcher—both metaphorically and actually. Meditation is one of the most serious things. You can do it all day, in the office, with the family, when you say to somebody, “I love you”, when you are considering your children. But then you educate them to become soldiers, to kill, to be nationalized, to worship the flag, educating them to enter into this trap of the modern world.
Watching all that, realizing your part in it, all that is part of meditation. And when you so meditate you will find in it an extraordinary beauty; you will act rightly at every moment; and if you do not act rightly at a given moment it does not matter, you will pick it up again—you will not waste time in regret. Meditation is part of life, not something different from life.

 

Krishnamurti - The Flight of the Eagle.


Langflestir menn eru enn í því vitundarástandi að barátta og stríð eru möguleg

Langflestir menn eru enn í því vitundarástandi að barátta og stríð eru möguleg. Á meðan svo er þá heldur sú barátta og þau stríð áfram. Ég er svo svartsýnn að segja að allar friðarumleitanir séu til lítils á meðan ekki er unnið að vitundarbreytingu mannsins. Allar ytri umbætur, hagræðing og jafnvel siðfræði, verða til lítils þegar hugarfarið er óbreytt. Og það sem meira er - friður og réttlæti mun ekki verða meðan vitundarlífið er óbreytt. Athafnir okkar ráðast af hugarfari okkar og tilfinningum. Tilfinningar okkar og hugarfar ræðst af því hvernig vitundarlífið er. Og vitundarlífið okkar ræðst af þeirri rækt sem við leggjum við að finna fyrir veruleikanum sem heild.

Birgir Bjarnason - Vitund, hugur og við


Njóttu lífsins

Í hugleiðslu iðkum við stundum það að telja andardrættina. Ykkur finnst kannski kjánalegt að telja andardrættina frá einum og upp í tíu, tapa síðan þræðinum og byrja upp á nýtt. Með aðstoð tölvu verða engin mistök. En undirliggjandi tilfinning athafnarinnar er mjög mikilvæg. Meðan við teljum hverja einustu tölu finnum við að líf okkar er óendanlega djúpt. Ef við teljum andardrættina eins og við gerum venjulega, eins og við værum að mæla fjarlægðina héðan og til tunglsins, þá hefur iðkun okkar enga merkingu.

 

Shunryu Suzuki-roshi í íslenskri þýðingu Mikhaels Óskarssonar.

Lesa í heild hér: http://zen.is/?p=838 


All major religious traditions carry basically the same message ...

All major religious traditions carry basically the same message, that is love, compassion and forgiveness the important thing is they should be part of our daily lives.

Our prime purpose in this life is to help others. And if you can't help them, at least don't hurt them.

Dalai Lama



Lífspekifélagið 1. des. - Hugleiðing og kaffispjall

Hugleiðing og kaffispjall

Dagskrá Lífspekifélagsins laugardaginn 1. des.
15:30 - Hljóð hugleiðing/íhugun
16:00 - Kaffi og léttar veitingar

 

 

Regluleg dagskrá hefst aftur 11. janúar. Sjá hér: http://lifspekifelagid.is/dagskra/index.html 


Í takt við lífið - Fyrirlestur um Zen 1. des.

 

Laugardaginn 1. des. kl. 09:15 - 10:15 verður Ástvaldur Zenki með fyrirlestur um Zen sem mun bera titilinn „Í takt við lífið“. Hefðbundin morgundagskrá hefst kl.08:00 með zazen hugleiðslu, en það er einnig hægt að koma inn fyrir fyrirlesturinn. Allir velkomnir.

www.zen.is


Meditation can improve health - More and more studies show its effectiveness

 

On Halloween, turnout at the Advaita Meditation Center in Waltham was lower than usual, but still, nearly 30 people filled the rooms of the old Victorian mansion. They attended a variety of classes, from beginning to advanced meditation, or gathered informally at a drop-in session to repeat their mantras and corral their minds.

Charnan Bray, an ESL teacher who lives in Waltham, is a newcomer. She considers herself an on-again off-again meditator who wants to become more serious about her practice. She went through a divorce last year and is looking for a way to become more mindful and reduce the stress in her life.

Hannah Fairbairn of Belmont, a long-time member of the center, has been meditating for about 30 years. She turned to meditation shortly after she suffered a detached retina and began losing her eyesight. “I’m as sane as I am today not the least because of meditation,” she said.

Since Herbert Benson, the cardiologist and author of the groundbreaking 1975 book “The Relaxation Response,” first began pioneering mind-body research 40 years ago, numerous scientific studies have offered evidence for both Bray’s hopes and Fairbairn’s experience. Researchers at universities across the world have reported positive results from meditation in a wide range of ailments, including high blood pressure, stroke risk, heart disease, weight management, chronic pain, and mental health.

The 2007 National Health Interview Survey found that 20 million US adults had turned to meditation for health reasons in the previous year.

 

Lesa greinina í heild: http://bostonglobe.com/lifestyle/health-wellness/2012/11/26/the-effectiveness-meditation-treat-array-illnesses-has-led-studies-how-meditation-can-change-brain/E8bvB57PLkIuIQmsLumDXL/story.html


Um mannshugann - Anna Valdimarsdóttir

Mannshugurinn er meistari í að leysa ytri vandamál. Við þurfum ekki lengur að skjálfa úr kulda í sauðskinnsskóm og skjóllitlum fatnaði, þurfum ekki að hætta lífi og limum þegar við leggjum upp í ferðalög, þurfum ekki að láta okkur nægja rímnakveðskap í rökkrinu þegar okkur langar í afþreyingu né leggja okkur hrátt kjöt til munns þegar við erum svöng (nema okkur langi í dýrindis carpaccio eða grafið hangiket). Mannshugurinn hefur ekki einungis fundið snjallar lausnir á aðkallandi vandamálum hann hefur líka fyllt líf okkar als kyns þægindum og tækniundrum.

Hvers vegna erum við þá ekki hamingjusamari? Þegar ég hugsa um það sé ég forfeður okkar fyrir mér rísa úr gröfum sínum og neðri kjálkana síga á hauskúpunum þegar þeir virða fyrir sér nútímaundrin og tæknibrellurnar. Ég sé fólkið fyrir mér sem rétt skrimti eða dó um aldur fram af harðindum, vosbúð og kulda líta hvert á annað og sömu hugsun lýsa úr öllum tómu augntóttunum: Vá, hvað fólkið hlýtur að vera ánægt sem nú er uppi.

En hvað mundi gerast ef forfeður okkar og formæður fengju að skyggnast inn í andlega líðan okkar? Mundu þau ekki bara hrista hvítar hauskúpurnar hvert framan í annað og skrölta beina leið oní grafirnar aftur? Því andleg líðan og hugarástand eru ekki í neinu samræmi við þægindin sem umkringja okkur. Óánægja með eigið útlit, atgervi og lífsafkomu er allsráðandi og aldurinn færist sífellt neðar þegar fólk fær sitt fyrsta alvarlega þunglyndiskast.

Lesa í heild hér: http://lifspekifelagid.is/greinasafn/Anna_Valdimarsdottir/um_mannshugan.html 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

OM - ॐ

Höfundur

OM
                                          OM

 

 

 

 

Þessi síða er helguð andlegum málefnum

 

Ég segi mennina boðna og velkomna, hvern veg sem þeir nálgast mig; því vegirnir, sem þeir velja sér, eru mínir vegir, hvaðan sem þeir liggja ... 

 

Bhagavad-Gita IV, 11

 

 

Netfang: leifurhl@gmail.com 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • FB IMG 1694031905677
  • Cohen
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1679170580329
  • FB IMG 1653925921669

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband