Færsluflokkur: Bloggar
27.10.2007 | 09:45
Mundaka Upanishad - 3. hluti, 2. kafli frh.
4.
Sjálfið verður ekki fundið af manni, sem
skortir þrek og árverkni og rétta íhugun.
En leiti maður þess með réttu hugarfari, þá mun
það sjálft opinberast í vitund hans.
5.
Þegar vitrir menn hafa fundið sitt innra
sjálf, ná þeir fyllingu í vizku, meðvitandi
um mikilvægi andans í fullkomnum innri firði.
Og þegar þessir vitru menn hafa fundið hinn
allsstaðar nálæga lífsanda, þá sameinast þeir
hinu eilífa.
6.
Þeir vitru menn, sem eygt hafa markmið
vizku Vedanta, hreinsað kenndir sínar fyrir
iðkun yoga, þeir öðlast frelsi að lífi loknu
í eilífð Guðs.
7.
Efnispartarnir hverfa til uppruna síns, en
andinn, vizkan og verkin verða eitt með hinu
æðsta ódauðlega.
Launviska Vedabóka - Mundaka Upanishad - 3. hluti, 2. kafli (Sören Sörenson endursagði úr frummálinu)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.10.2007 | 19:09
Mundaka Upanishad - 3. hluti, 2. kafli
1.
Hann skynjar hið æðsta heimkynni andans,
sem er ljós allrar sköpunar. Vitrir menn, sem
lausir eru við ástríður hugans og lúta anda sínum
í lotningu, binda sér ekki athafnaviðjar.
2.
Maður sá, sem elur með sér ástríður og sækist
eftir fullnægingu þeirra, hann grefur sér gröf
og hrekst úr lífi í dauða aftur og aftur. En sá, sem
sefað hefur kenndir sínar og öðlast sálarró,
hann hefur unnið bug á ástríðum öllum.
3.
Andinn verður eigi skynjaður fyrir fræðslu,
eigi fyrir ályktanir dómgreindar né fyrir
mikinn lærdóm. Hann opinberast þeim einum,
sem er í samhljóm við hann.
Launviska Vedabóka - Mundaka Upanishad - Annar hluti (Sören Sörenson endursagði úr frummálinu)
Bloggar | Breytt 27.10.2007 kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2007 | 20:07
Dagskrá Guðspekifélagsins föstudag og laugardag
Föstudaginn 26. október kl. 20.30 Birgir Bjarnason flytur erindi eftir Sigvalda Hjálmarsson |
Laugardaginn 27. október kl.15.30 Af mynddiski: Sigvaldi Hjálmarsson fjallar um Rödd þagnarinnar. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.10.2007 | 10:03
Reynsla og tilraunir með orkustöðvarnar
Reynsla og tilraunir með orkustöðvarnar I
EFTIR AÐ hafa skoðað vandlega efni um orkustöðvarnar voru það tvær spurningar sem sóttu á mig.
Fyrri spurningin var einfaldlega: Mun hinn almenni lesandi trúa því að orkustöðvarnar séu til?" Ég trúi á tilvist þeirra og til að leggja lóð á vogarskálar sannana fyrir þessari staðhæfingu langar mig að lýsa hér þeirri reynslu af orkustöðvunum sem ég hef haft á þrjátíu ára ferli sem yogaiðkandi. Þar að auki langar mig að lýsa þeim vísindalegu athugunum sem ég hef gert á tilvist orkustöðvanna og meðfylgjandi orkukerfum.
En fyrst vil ég taka fyrir síðari spurninguna sem kom upp vegna fyrrgreindra athugana. Hún fjallar um vanda sem ég á í vegna staðhæfingar Leadbeaters um að þær orkustöðvar sem hann upplifði, væru þær einu sönnu og að hinar hefðbundnu austrænu framsetningar á orkustöðvum væru aðeins táknmyndir.
Sjálfur hef ég ekki upplifað táknin sem slík í sambandi við vöknun eigin orkustöðva. Aftur á móti hefur móðir mín, einföld kona án nokkurrar þekkingar á sanskrít, gert það. Hún minntist oft á það að hún sæi tákn sem líktist seglskútu á hvolfi inni í sexarma stjörnu í hjartastöð sinni. Við veltum því oft fyrir okkur hvað þetta mundi tákna. Það var ekki fyrr en ég fór að læra sanskrít mörgum árum síðar að sú staðreynd sló mig, að móðir mín hafði séð táknið sem samkvæmt hefðinni tengist hjartastöðinni: Bija mantran yam" umlukið stjörnu. Það er því erfitt fyrir mig að fallast á viðhorf Leadbeaters.
Ef við tengjum þetta staðhæfingu Satyananda um að það sé í raun og veru til vídd eða svið þar sem möntrur og jöntrur eiga sér tilvist, er ég farinn að hafa það á tilfinningunni að þær orkustöðvar sem Leadbeater upplifði, séu hugsanlega orkustöðvar sem tilheyra ljósvakalíkamanum, fremur en hinar æðri orkustöðvar í geðheimum eða á orsakasviðinu. Þetta kann að einhverju leyti að skýra þá undarlegu hegðun Leadbeaters að sleppa svadhishthana orkustöðinni, en tala þess í stað aðeins um miltisstöðina", þ.e. manipura. Ég veit ekki hvort hann einfaldlega leit fram hjá svadhishthana eða e.t.v. afneitaði henni viljandi af einhverjum ástæðum.
Frá unga aldri var ég leiddur til andlegs veruleika. Bæði móðir mín og fósturmóðir sem voru andlegir leitendur, fóru með mig frá fjögurra ára aldri til mustera og helgistaða í fjöllunum á Shodoeyju, fæðingarstað mínum. Þær kenndu mér að kyrja búddhiskar sútrur og shintó-bænir og við þrjú kyrjuðum klukkutímum saman.
Þær fóru einnig með mig á staði sem höfðu orð fyrir að hafa mikla orku vegna trúarlegra iðkana og einlífis, svo sem til Kobo-fossanna. Þennan stað man ég sérstaklega vel. Þangað var átta kílómetra löng ganga um þéttan skóg sem var myrkur jafnvel um hábjartan dag og allt svæðið var morandi af vatnasnákum. Mér fannst þetta mjög ógnvekjandi.
Á þessum árum með mæðrum mínum var ég fræddur um og fékk að upplifa tilveru yfirmannlegra vera, vitundarvera sem lifðu á æðri tilverusviðum. Það hlýtur að hafa verið sambland þessara umhverfisþátta og karma mitt sem leiddi mig til upplifunar æðri tilverustiga. Þetta var ástæðan fyrir að ég hóf að iðka yoga fyrir þrjátíu árum. Leyfið mér nú að fara yfir þá sögu með ykkur.
Vakning á muladhara-orkustöðinni
Ég var tuttugu og fimm ára. Fyrsta iðkun mín fólst í því að vakna klukkan þrjú á hverjum morgni, iðka asönur (yogastellingar) í u.þ.b. hálftíma og sitja síðan og hugleiða í þrjá til fjóra tíma. Fyrri hluti hugleiðingarinnar var helgaður pranayama (öndunaræfingum) en hinn síðari fólst í fasthygli á ákveðna orkustöð.
Hér er byrjunar pranayama-aðferðin sem ég fylgdi:
Andaðu inn lífsorku (prana) um vinstri nösina niður í neðri hluta kviðarins í fjórar sekúndur. Haltu lífsorkunni í uppþemdu neðra kviðarholinu í átta sekúndur. Lyftu síðan kundalini (slöngueldinum) upp frá rófubeininu upp í neðra kviðarholið (svadhishthana-orkustöðina) og herptu saman kviðvöðvana. Sjáðu fyrir þér blöndun og sameiningu prönunnar og kundalini í átta sekúndur. Andaðu frá þér í gegnum hægri nösina í fjórar sekúndur. Þannig tekur ein hringferð öndunar tuttugu og fjórar sekúndur. Endurtaktu allt ferlið með því að anda inn um hægri nös og út um þá vinstri, o.s.frv. til skiptis.
Ég gerði þetta frá fjórtán til tuttugu og einu sinni í senn. Eftir einn til tvo mánuði gat ég lengt tímabil kumbhaka (að halda niðri í sér andanum) í eina til eina og hálfa mínútu. Þegar ég einbeitti athyglinni að svadhishthana eða anja-orkustöðinni, hættu veraldlegar hugsanir smám saman að koma upp í hugann. Ég byrjaði að upplifa það að líkami minn og hugur fylltust geysilegri orku.
Vegna iðkananna byrjaði líkamlegt og sálrænt ástand mitt að taka breytingum. Ég hafði oft átt við truflanir í maga og eyrum að stríða. Ég hafði einnig verið kvíðinn og óvenjulega næmur fyrir veðráttu, bæði líkamlega og andlega. Innan sex mánaða eftir að ég byrjaði iðkunina voru þessi vandamál horfin.
Við frekari iðkun fór ég að taka eftir nýjum skynjunum. Ég hafði kitlandi tilfinningu við rófubeinið, flöktandi tilfinningu í enninu og hvirflinum og hitatilfinningu í neðra kviðarholi. Ég gat heyrt hljóð, eitthvað í líkingu við býflugnasuð, nálægt rófubeininu. Í hinu daglega lífi varð lyktarskynið svo næmt að ég gat ekki þolað ertandi lykt.
Þetta ástand hélst í tvo til þrjá mánuði. Dag einn, þegar ég hugleiddi eins og venjulega við altarið, varð mér óvenjulega heitt í neðra kviðarholinu og sá þar kringlótt svart-rauðleitt ljós eins og eldhnött sem var að því kominn að springa, í miðju hvítu skýi. Skyndilega þaut ósegjanleg orka upp mænuna upp í hvirfilinn, og þótt það tæki aðeins eina eða tvær sekúndur, lyftist líkami minn nokkra sentímetra frá gólfi. Ég varð skelfingu lostinn. Líkaminn var allur í báli og mikill höfuðverkur kom í veg fyrir að ég gæti gert nokkuð þann daginn. Hitatilfinningin hélt áfram í tvo til þrjá daga. Mér fannst að höfuðið væri að springa úr orku. Að slá sjálfan mig í námunda við hlið Brahman" í hvirflinum var það eina sem linaði ástandið.
Þetta var þá fyrsta skiptið sem ég upplifði ris kundalini shakti (slöngueldsins) gegnum sushumna (höfuð orkurásina í mænugöngunum) upp í hvirfilinn. Ég upplifði ekki eins mikil líkamleg eða hugræn vandræði og oft eru tileinkuð þessari reynslu, sennilega vegna þeirrar staðreyndar að hlið Brahman var hjá mér þegar opið og shakti-orkan gat flætt áfram út í víddir geðheimsins.
Hiroshi Motoyama
Sjá: http://www.ismennt.is/not/birgirb/Reynslav96.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2007 | 20:36
Our own life has to be our message
"Every one of us can do something to protect and care for our planet. We have to live in such a way that a future will be possible for our children and our grandchildren and our own life has to be our message."
Thich Nhat Hanh
Sjá: http://www.plumvillage.org/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2007 | 20:57
Í hugleiðslu snýrð þú útgeislun þinni aftur innávið
Í hugleiðslu snýrð þú útgeislun þinni aftur innávið. Þar sem ekki er neitt fyrir utan sjálfan þig, er allur heimurinn hið innra með þér sjálfum. Þetta er útgeislun. Hvernig getur þú meðtekið himininn ef þú ert ekki hluti af honum? Hvernig getur þú meðtekið ást ef þú ert ekki hluti af henni? Hvernig getur þú meðtekið fegurðina ef þú ert ekki fegurðin sjálf? Þannig að frá morgni til kvölds, hvort sem við heyrum, sjáum , hlæjum, grátum, í hamingju, í reiði verður stóra spurningin: "Hver er þessi persóna?" Þessi persóna er okkar upprunalegi hugur. Hið stóra sjálf sem birtist á óteljandi vegu.
Jakusho Kwong-roshi - No beginning, No End
Sjá hér: http://www.zen.is/greinar.htm
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.10.2007 | 08:54
The Yoga of Jesus
Jesus went very deep in teachings that appear on the surface to be simple much deeper than most people understand In [his teaching] is the whole science of yoga, the transcendental way of divine union through meditation.
Paramahansa Yogananda Autobiography of a Yogi
Hér getið þið fengið nýjustu bókina frá Self-Realization Fellowship sem heitir The Yoga of Jesus: Understanding the Hidden Teachings of the Gospels. Bókin er sögð eftir Yogananda: http://www.amazon.com/Yoga-Jesus-Understanding-Teachings-Gospels/dp/0876125569/ref=pd_bbs_sr_1/002-7020032-4251263?ie=UTF8&s=books&qid=1192911146&sr=8-1
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2007 | 18:46
We may sleep for a little while in that change called death, but we can never be destroyed.
Our real self, the soul, is immortal. We may sleep for a little while in that change called death, but we can never be destroyed. We exist, and that existence is eternal. The wave comes to the shore, and then goes back to the sea; it is not lost. It becomes one with the ocean, or returns again in the form of another wave. This body has come, and it will vanish; but the soul essence within it will never cease to exist. Nothing can terminate that eternal consciousness.
Paramahansa Yogananda
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2007 | 10:46
Dagskrá Guðspekifélagsins um helgina
Föstudaginn 19. október kl. 20.30 Tryggvi Gíslason: Úr Völuspá.
|
Laugardaginn 20. október kl.15.30 Sigrún Sól Sólmundsdóttir - Aromatherapy
Sjá betur hér: www.gudspekifelagid.is |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.10.2007 | 23:04
Þegar þú dýfir þér þá hverfa bæði hugmyndin um sundmanninn og hafið
Ef við ætlum okkur að iðka zazen í hversdagslífinu verðum við að hugsa það í víðu samhengi. Við verðum að iðka zazen af fullri einbeitingu. Þegar þú iðkar zazen eða eitthvað annað gerðu það af fullum heilindum. Ef þig langar til að synda dýfðu þér í hafið og syntu af hjartans heilindum. Og þegar þú dýfir þér þá hverfa bæði hugmyndin um sundmanninn og hafið. Það er einungis athöfnin að synda. Af hjartans heilindum þýðir að gera eitthvað með engum huga. Það þýðir að vera á kafi í sínum eigin athöfnum og raungera tímann nákvæmlega hér og nú.
Dainin Katagiri-roshi - Þú verður að segja eitthvað (You have to say something)
Sjá betur hér: http://www.zen.is/greinar.htm#thu%20verdur%20katagiri
Bókin You have to say something eftir Dainin Katagiri-roshi fæst hér: http://www.amazon.com/s/ref=nb_ss_gw/105-7398068-3634059?initialSearch=1&url=search-alias%3Daps&field-keywords=You+have+to+say+something&Go.x=9&Go.y=6
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
OM - ॐ
Færsluflokkar
Tenglar
Hugleiðslunámskeið á Íslandi
- Námskeið hjá Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni
- Sahaja yoga-hugleiðsla
- Hugleiðslunámskeið hjá Brahma Kumaris
- Sri Chinmoy miðstöðin á Íslandi
- Andartak.is - Kundalini jóga og hugleiðsla
- Zen-hugleiðslunámskeið
- Dharma.is - Innsæishugleiðsla
- Innhverf íhugun
Frí hugleiðslunámskeið á Netinu
- Free Meditations
- Námskeið í búddískri hugleiðslu
- Námskeið í Kundalini yoga
- Free online meditation course
- Free Sahaja meditation course online
Hugleiðsla
Hér er að finna tengla þar sem þú getur lært og kynnt þér hugleiðslu.
- Listin að hugleiða
- Zen á Íslandi - Zen-hugleiðsla
- Kristbjörg
- Kundalini-hugleiðsla
- Hugleiðslu- og friðarmiðstöðin
- SGI-búddismi á Íslandi
- Sri Chinmoy miðstöðin á Íslandi
- Skandinavíski yoga- og hugleiðsluskólinn
- Leiðbeiningar fyrir Zen-hugleiðslu
- Sahaja Yoga
- Brahma Kumaris - Raja Yoga hugleiðsla
- Jack Kornfield - Insight Meditation (vipassana)
- Centerpointe
- Ljósmiðlun
- Traditional Yoga and Meditation of the Himalayan Masters
- Innhverf íhugun
- Vipassana meditation course
Helg forn rit
- Veda-ritin
- Bhagavad Gita
- Bhagavad Gita
- Upanishads
- Upanishads
- Shiva sutra
- Brahma Sutra
- Yogasútrur Patanjalis
- Rig Veda
- Sama Veda
- Hatha Yoga Pradipika
- Shiva Samhita
- Gheranda Samhita
- Sacred Texts (Helg indversk rit)
- Biblían
- Dhammapada
- Kóraninn
Tímarit um andleg málefni
- Tímaritið Knowledge of reality
- Bindu - Tímarit Skandinavíska yoga- og hugleiðsluskólans
- Tímaritið Gangleri
- Primary Point - Zen
- Efnisskrá Ganglera frá 1926
- The Sufism Journal online
- The Theosophist
Bækur á íslensku um andleg málefni
- Starfsrækt (Karma yoga) - Swami Vivekananda
- Allar bækur Gunnars Dal
- Bækur eftir Alice Baily
- Martínus - Bækur á íslensku
- Launviska Vedabóka
Bækur um andleg málefni
- The Unknown Life of Jesus Christ
- Bók um Kriya Yoga
- Sjálfsævisaga Jóga
- Whispers from Eternity - Paramahansa Yogananda
- The Path - Swami Kriyananda
- God is for Everyone - Inspired by Yogananda
- My time with the master - Paramahansa Prajnanananda
- The Universe Within - Paramahansa Prajnanananda
- The art and science of Raja Yoga - Swami Kriyananda
- Complete work of Swami Vivekananda
- Gopi Krishna - Bækur, greinar og viðtöl
- Bókin Zen and the brain
- Zen Mind, Beginner´s Mind - Shunryu Suzuki-roshi
- Manual of Zen Buddhisim - D. T. Suzuki
- Stripping the Gurus
- Rödd þagnarinnar á ensku
- Eckhart Tolle - Stillness Speaks - Hljóðbók
- Bækur eftir Ramana Maharshi
- Saundarya Lahiri
- The Meditative Mind - Krishnamurti
- Krishnamurti´s Notebook
- Meditations - Krishnamurti
- The Serpent Power
- C. W. Leadbeater - Chakras: A Monograph
- Kundalini Yoga - Swami Sivananda
- Fríar bækur með Krishnamurti
- The Tibetan Book of Dead
- Karma Yoga - Swami Vivekananda
- Leiðarljós (Light on the Path) á ensku
- The Power of Now - Hljóðbók
- Hljóðbókin Breath sweeps mind eftir Jakusho Kwong-roshi
- Opening the Hand of Thought Bók eftir Kosho Uchiyama
- To shine one corner of the world : moments with Shunryu Suzuki : stories of a Zen master told by his students
- How to Cook your Life - Dogen
- The Art of Just Sitting: Essential Writings on the Zen Practice of Shikantaza
- On Zen Practice
- On Having No Head
Greinar um andleg málefni
- Greinasafn Lífspekifélagsins/Guðspekifélagsins
- Greinar eftir Sigvalda Hjálmarsson
- Greinar og rannskóknir tengdar kundalini
- Krishnamurti - Greinar, viðtöl og tilvitnanir
- Hugleiðingar um kenningar Sigvalda Hjálmarssonar - I. Hluti
- Hugleiðingar um kenningar Sigvalda Hjálmarssonar - II. hluti
- Greinar úr zen-tímaritinu Primary Point
- Greinar eftir dr. Erlend Haraldsson
- Greinasafn Jóns L. Arnalds
- Yður er í dag frelsari fæddur? - Njörður P. Njarðvík
- Yoga og geðrækt
- Leiðin til hugljómunar - Sigvaldi Hjálmarsson
- Geinar úr tímaritinu Quest
Ýmsir tenglar andlegs eðlis - Íslenskir
- Kærleikssetrið
- Jógakennarafélag Íslands
- Lífspekifélagið/Guðspekifélagið
- AA
- CoDa
- Viska og gleði
- Kærleikssamtökin
- Björg Einarsdóttir
- Trú.is
- LAUSNIN - Baráttusamtök gegn meðvirkni
- Dharma.is - Innsæishugleiðsla
- Dulheimar - Andleg þróunarheimspeki
- Vetrarbrautin.com
- Listi yfir skráð trú- og lífskoðunarfélög á Íslandi
Ýmsir tenglar andlegs eðlis - Erlendir
- DharmaTalk með Thich Nhat Hanh
- Agni Yoga
- Meditation of the Himalayan Masters
- Vedanta Society
- Vedanta.com
- tantra-kundalini.com
- Ayurveda-próf - Hvaða líkamsgerð ertu?
- Prajnanamission
- Big Mind
- Vedanta Spiritual Library
- Great Integral Awakening
- Sounds True
- Wildmind - Buddhist Meditation
- Institute for Consciousness Research
- Biology of Kundalini
- Kundalini Research Network
- Hindu Tantrik Tradition
- Inner Self
- Spirit Voyage
- Dalai Lama kyrjar möntru úr Rig Veda
- Ýmislegt um Ramakrishna
- The Five Tibetan Rite
- Message from masters
- Bæklingur um sanskrítarframburð
- The Theosophical Society - International Headquarters
- Sri Vidya
- Vedanet
- Eastern tradition - Eastern Tradition Research Archive
- Lífspekifélög/Guðspekifélög um allan heim
Ýmsir andans menn
- Sigvaldi Hjálmarsson
- J. Krishnamurti
- Ken Wilber
- Gopi Krishna
- Swami Sivananda
- Osho
- Deepak Chopra
- Swami Vivekananda
- Sri Ramakrishna
- Yogi Hari
- Eckhart Tolle
- Yogi Shanti Desai
- Yogi Amrit Desai
- Shunryu Suzuki roshi
- Ramana Maharishi
- Sri Aurobindo
- Paramahansa Yogananda
- Paramahamsa Hariharananda
- Jakusho Kwong-roshi
- Jack Kornfield
- Swami Rama
- Grétar Fells
- D. T. Suzuki
- Dalai Lama
- Thich Nhat Hanh
- Eckhart Tolle
- Helena Blavatsky
- Paramahamsa Prajnanananda
- Rupert Spira
- Bodhidharma
- Om Swami
Lífspeki/Guðspeki
- Lífspekifélag Íslands
- Lífspekifélagið í USA
- Helena Blavatzky
- Facebook-síða Lífspekifélags Íslands
- Aðalstöðvar Lífspekifélagsins á Indlandi
Kriya Yoga
Hér er að finna tengla tengda Kriya Yoga
- Kriya Yoga Institute
- Paramahansa Hariharananda
- Paramahamsa Prajnanananda
- Bækur um Kriya Yoga eftir Hariharananda og Prajnananda
- Self-Realization Fellowship
- Ananda: The Teaching of Paramahansa Yogananda
- Cyberspace Ashram for Kriya Yoga
- Bókin Sjálfsævisaga jóga (Autobiography of a Yogi)
- Kriya Yoga - Swami Shankarananda Giri
- Kriya Yoga - Yogi Dhirananda
- Bók um Kriya Yoga á Netinu
- Kriya Yoga in the Lahiri Mahasaya family tradition
- Babaji´s Kriya Yoga
- Myndbönd um kriya yoga
- Prajnanamission
- Babaji Kriya Hatha Yoga - 18 Kriya Postures
- Umsókn - Kennslustundir hjá SRF
Hatha Yoga (Líkamsstöður - Teygjur)
- Yogavin
- Jóga hjá Kristbjörgu
- Jóga Stúdíó
- Jógakennarafélag Íslands
- Jóga Jörð
- Jen Reviews
- Sólir
- Yogashala
- Jógakennarar og jógastöðvar á Íslandi
Zen
- Zen á Íslandi
- Sonoma Mountain Zen Center
- Bókin Zen Mind, Beginners Mind eftir Shunryu Suzuki-roshi
- Bókin No Beginning. No End eftir Jakusho Kwong-roshi kennara Zen á Íslandi
- Hljóðbókin Breath Sweeps Mind eftir Jakusho Kwong-roshi
- The Teaching of Shunryu Suzuki-roshi
- San Francisco Zen Center
- Myndbönd með Suzuki-roshi
- Plum Village - Thich Nhat Hanh
- Zen of Recovery - Mel Ash
- Zen Road
- Zen sútrur
- Kwan Um School of Zen
- Daily Zen
- Big Mind
- Zen Peacemakers
- Suzuki-roshi 50
- Hljóðbókin Zen mind, beginner´s mind
- The Suzuki Roshi Audio Archive
- Opening the Hand of Thought Bók eftir Kosho Uchiyama
- To shine one corner of the world : moments with Shunryu Suzuki : stories of a Zen master told by his students
- How to Cook your Life - Dogen
- The Art of Just Sitting: Essential Writings on the Zen Practice of Shikantaza
- On Zen Practice
Bloggvinir
-
thesecret
-
gudjonbergmann
-
gyda
-
heringi
-
gudmundurhelgi
-
braxi
-
fruheimsmeistari
-
vilborg-e
-
steina
-
ludvik
-
maggadora
-
baenamaer
-
perlaheim
-
vestfirdir
-
vglilja
-
palmig
-
einherji
-
andreaolafs
-
flinston
-
birnarebekka
-
tilfinningar
-
dizadj
-
gylforce
-
esa-emorea777
-
estersv
-
eydis
-
gudjonelias
-
heildraent-joga
-
heildraent-lif
-
guru
-
tru
-
fun
-
jensgud
-
josira
-
katrinsnaeholm
-
kari-hardarson
-
kiza
-
kjarvald
-
kristinnhalldor
-
kiddirokk
-
krilli
-
laufherm
-
mariaannakristjansdottir
-
manisvans
-
nanna
-
aronsky
-
huldumenn
-
ragjo
-
rose
-
straitjacket
-
vinur
-
nimbus
-
slembra
-
svanurg
-
toshiki
-
hanoi
-
thorhallurheimisson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar